mobile navigation trigger mobile search trigger
12.02.2024

Snjómokstur 12. febrúar

Snjómokstur gengur samkvæmt áætlun. Einhverjar tafir geta þó orðið þegar líður á daginn.

Snjómokstur 12. febrúar

👉Áhersla er lögð á sjómokstur á þjónustuleið eitt og tvö.

Tilhögun snjómoksturs er eftirfarandi:

  • Þjónustuleið 1 – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
  • Þjónustuleið 2 – Aðrar tengibrautir og safngötur, með minni umferð, eru þjónustaðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt.
  • Þjónustuleið 3 – Húsagötur og fáfarnar safngötur er þjónustuðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt og tvö

Snjómoksturinn er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála.

Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.

Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.

Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.

Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri inná ábendingagátt Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit