mobile navigation trigger mobile search trigger
30.03.2023

Snjómokstur fimmtudaginn 30. mars

Snjómokstur er víða í fullum gangi og mun ganga samkvæmt áætlun í öllum hverfum. Mikill krapi er, sem hætt er við að breytist í vatnselg þegar líða tekur á daginn. Gert er ráð fyrir að það verði orðið vel fært um flestar götur í Fjarðabyggð uppúr hádegi. 

👉 Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.

👉 Mikilvægt er að íbúar hugi að niðurföllum í nærumhverfi sínu til að koma í veg fyrir vatnstjón. 

Snjómokstur fimmtudaginn 30. mars

Áhersla er lögð á sjómokstur á þjónustuleið eitt og tvö, þegar því er lokið er hafinn snjómokstur á þjónustuleið þrjú.

Tilhögun snjómoksturs er eftirfarandi:

  • Þjónustuleið 1 – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
  • Þjónustuleið 2 – Aðrar tengibrautir og safngötur, með minni umferð, eru þjónustaðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt.
  • Þjónustuleið 3 – Húsagötur og fáfarnar safngötur er þjónustuðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt og tvö

👉 Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.

👉 Snjómoksturinn er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála.

👉 Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.

Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.

Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri inná ábendingagátt Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit