mobile navigation trigger mobile search trigger
17.01.2024

Snjómokstur miðvikudaginn 17. janúar

Snjómokstur gengur samkvæmt áætlun. Tafir eru hinsvegar á snjómokstri á Norðfirði og Fáskrúðsfirði vegna bilunnar á tækjum. Einnig geta verið tafir á snjómokstri vegna fannfergis.

Beðist er velvirðingar á því. 

Snjómokstur miðvikudaginn 17. janúar

👉Áhersla er lögð á sjómokstur á þjónustuleið eitt og tvö.

Tilhögun snjómoksturs er eftirfarandi:

  • Þjónustuleið 1 – Aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
  • Þjónustuleið 2 – Aðrar tengibrautir og safngötur, með minni umferð, eru þjónustaðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt.
  • Þjónustuleið 3 – Húsagötur og fáfarnar safngötur er þjónustuðar þegar mokstri lýkur í þjónustuflokki eitt og tvö

Snjómoksturinn er í sífeldri skoðun á framkvæmdasviði Fjarðabyggðar og vel fylgst með stöðu mála.

Íbúar eru beðnir um að sýna verktökum sem sinna snjómokstri tillitsemi og þolinmæði meðan sú vinna stendur yfir.

Einnig eru það vinsamleg tilmæli til íbúa að þeir leggi bílum sínum ekki þannig að það tefji fyrir snjómokstri.

Fyrir frekari upplýsingar um tilhögun snjómoksturs og hálkueyðingar í Fjarðabyggð er bent á verklagsreglur sem finna má á heimasíðunni með því að smella hér. Kort sem sýna þjónustuflokka gatna í hverjum byggðakjarna má svo finna hér.

Við minnum á að hægt er að koma ábendingum varðandi snjómokstur á framfæri inná ábendingagátt Fjarðabyggðar.

Frétta og viðburðayfirlit