mobile navigation trigger mobile search trigger
18.07.2022

Fjarðabyggð hlýtur styrk frá Alcoa Foundation til náttúrverndar og minjavörslu á Gerpissvæðinu og í Hólmanesi

Alcoa Foundation, samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum, hefur veitt Fjarðabyggð 130 þúsund dollara styrk til að stuðla að náttúruvernd og minjavörslu á Gerpissvæðinu og í Hólmanesi. Styrkurinn var veittur formlega í Viðfirði föstudaginn 15. júlí síðastliðinn. Þar var hópur á vegum Fjarðabyggðar að vinna að því að byggja upp göngustíg á svæðinu en það er hluti af þeirri vinnu sem styrkurinn nær til. Vinnan felst meðal annars í því að viðhalda gömlum hleðslum og veita vatni frá stígnum. 

Fjarðabyggð hlýtur styrk frá Alcoa Foundation til náttúrverndar og minjavörslu á Gerpissvæðinu og í Hólmanesi
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Anna Berg Samúelsdóttir fráfarandi umhverfisstjóri Fjarðabyggðar tóku við styrknum frá Einari Þorsteinssyni forstjóra Alcoa Fjarðaáls og Dagmar Ýr Stefánsdóttur yfirmanni samskipta og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli.

Styrkurinn, sem var greiddur til Fjarðabyggðar á síðasta ári, nam um 20 milljónum íslenskra króna á þáverandi gengi. Styrkurinn er annars vegar nýttur í að vakta flóru og fánu í fólksvöngum Fjarðabyggðar og hins vegar til að varðveita menningarminjar sem felst í að endurheimta gamlar hleðslur í stígum á svæðinu. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri Fjarðabyggðar tók formlega við styrknum fyrir hönd sveitarfélagsins: „Þessi styrkur er sveitarfélaginu mikilvægur því fyrir tilstilli hans er hægt að vinna að verkefnum á sviði náttúruverndar og minjavörslu á þessum mikilfenglegu svæðum í Fjarðabyggð. Við erum þakklát Alcoa Foundation að veita okkur tækifæri til að sinna jafn vel og raun ber vitni þessum verkefnum.“

Einar Þorsteinsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls afhenti styrkinn fyrir hönd Alcoa Foundation og hann sagði samfélagslega mikilvægt að öflugt fyrirtæki á borð við Alcoa taki virkan þátt í að byggja upp samfélagið á Austurlandi: „Alcoa Foundation er stór sjóður sem við njótum þess að geta sótt styrki í hér fyrir nærsamfélagið. Sjóðurinn styrkir verkefni á sviði umhverfisverndar og menntunar og verkefnið sem Fjarðabyggð sótti um er frábært dæmi um verkefni þar sem stuðlað er að verndun náttúru hér á svæðinu.

Fleiri myndir:
Fjarðabyggð hlýtur styrk frá Alcoa Foundation til náttúrverndar og minjavörslu á Gerpissvæðinu og í Hólmanesi
Anna Berg umhverfisstjóri hefur unnið að því síðustu vikur ásamt vinnuflokkum að lagfæra stíginn sem liggur um Viðfjörð til að gera hann betri fyrir göngufólk. Unnið hefur verið að því að endurheimta hleðslur og veita vatni frá veginum. F.v.: Einar Þorsteinsson, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Anna Berg Samúelsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Páll Freysteinsson.

Frétta og viðburðayfirlit