mobile navigation trigger mobile search trigger
05.04.2023

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð opnar eftir páska þriðjudaginn 11. apríl

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð í Neskaupstað verður lokuð frá og með morgundeginum, skírdag 2. apríl, og verður lokuð yfir páskana. Hún opnar aftur þriðjudaginn 11. apríl og verður opin út vikuna til og með 14. apríl.

Opnunartími miðstöðvarinnar er frá kl. 11 til 18. Þar er í boði kaffi, spjall, stuðningur við íbúa og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum ofanflóða og ofanflóðahættu á Austfjörðum.

Stuðningurinn felur meðal annars í sér upplýsingagjöf af ýmsu tagi og Rauði krossinn býður upp á sálfélagslegan stuðning.

Þjónustumiðstöðin stendur öllum á Austfjörðum til boða og þau sem hafa ekki tök á að koma í heimsókn eða kjósa að gera það ekki geta haft samband í gegnum síma 855 2787 eða í netpósti á netfangið fyrirspurnir@almannavarnir.is

Þjónustumiðstöð Almannavarna í Egilsbúð opnar eftir páska þriðjudaginn 11. apríl

Þeir íbúar sem finna til óöryggis við þær aðstæður sem við stöndum frammi fyrir þessa dagana eru hvattir til að þiggja sálrænan stuðning frá viðbragðsaðilum.

Nánari upplýsingar má finna hér

Einnig er minnt opnun á þjónustumiðstöðina í Herðubreið á Seyðisfirði þriðjudaginn 11. apríl klukkan
13-17.

Frétta og viðburðayfirlit