mobile navigation trigger mobile search trigger
09.06.2023

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi, Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 08.06.2023 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi, Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði samkvæmt við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögu að breytingu á skipulaginu má nálgast frammi á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2, Reyðar­firði, á vef sveitarfélagsins www.fjardabyggd.is og í Skipulagsgátt á www.skipulagsgatt.is, frá og með 09.06.2023 til 28.07.2023.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við breytinguna skal skilað inn eigi síðar en 28.07.2023 undir yfirskriftinni „Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði – auglýsing“ á netfangið aron.beck@fjardabyggd.is eða bré­flega á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfjörður.

Virðingarfyllst,

Aron Leví Beck

Skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit