mobile navigation trigger mobile search trigger
09.06.2023

Tillaga að nýju deiliskipulagi, Dalur athafnasvæði á Eskifirði – auglýsing

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 08.06.2023 að auglýsa nýtt deiliskipulag Dalur athafnasvæði á Eskifirði samkvæmt við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillöguskipulaginu má nálgast frammi á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2, Reyðarfirði, á vef sveitarfélagsins www.fjardabyggd.is og í Skipulagsgátt á www.skipulagsgatt.is, frá og með 09.06.2023 til 28.07.2023.  

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við breytinguna skal skilað inn eigi síðar en 28.07.2023 undir yfirskriftinni „Dalur athafnasvæði - Auglýsing“ á netfangið aron.beck@fjardabyggd.is eða bréflega á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfjörður.  

Virðingarfyllst,  

Aron Leví Beck  

Skipulags- og umhverfisfulltrúi Fjarðabyggðar 

Frétta og viðburðayfirlit