mobile navigation trigger mobile search trigger
02.02.2024

Verkefnastjóri á framkvæmda- og umverfissviði: Skipulags- og byggingarmál

Fjarðabyggð auglýsir laust til umsóknar starf verkefnastjóra skipulags- og byggingarmála á framkvæmda- og umverfissviði.

Verkefnastjóri sinnir verkefnum við skipulags- og byggingarmál auk almennrar þjónustu á framkvæmda- og umhverfissviði. Verkefni starfsins eru fjölþætt en auk áherslu á skipulags- og byggingarmál felast þau í öðrum verkefnum innan sviðsins, þ.m.t. umhverfis- og loftlagsmálum ásamt framkvæmdamálum.

Við leitum af öflugum og hæfum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga til að leggja sitt að mörkum við áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu. Leitað er eftir einstakling sem á auðvelt með að starfa í teymi.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á móttöku og skráningu teikninga og skjala vegna byggingar- og framkvæmdamála.
  • Ábyrgð og umsjón á skjala- og teikningavörslu.
  • Ábyrgð á skráningu upplýsinga vegna skipulags- og byggingarmála, gatna og veitna.
  • Almenn þjónusta á framkvæmda- og umhverfissviði við viðskiptavini.
  • Þátttaka í undirbúningi mál og funda á sviðinu ásamt afgreiðslufundum. Ábyrgð á frágangi annarra mála sviðsins sem honum er falið.
  • Þátttaka í starfi og teymisvinnu innan sviðs sem utan.

Menntun og hæfni:

  • Stúdentspróf, sveinsréttindi í mannvirkjaiðn eða sambærileg menntun er áskilin.
  • Háskólapróf grunnnám, B.A. B.Ed. B.S. B.Sc. eða tæknimenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Þjónustulund og hæfni í samskiptum er mikilvæg.
  • Sjálfstæði og agað verklag er mikilvægt.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Færni í teymisstarfi og umbótaverkefnum.

Starfslýsing - Verkefnastjóri á framkvæmdasviði.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar

Upplýsingar veitir Aron Leví Beck, skipulags- og byggingarfulltrúi í síma 470 9000 eða á netfangið aron.beck@fjardabyggd.is 

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit