mobile navigation trigger mobile search trigger
14.06.2022

Vígsluhátíð Lyngholts 16. júní 2022

Fimmtudaginn 16. júní milli kl. 14 - 16 verður ný viðbygging við Leikskólann Lyngholt formlega tekin í notkun. Af því tilefni verður íbúum boðið að koma og vera viðstaddir, þiggja veitingar og skoða húsnæði Lyngholts.

Vígsluhátíð Lyngholts 16. júní 2022

Ný viðbygging leikskólans Lyngholts á Reyðarfirði var tekin formlega í notkun sumarið 2020. Vegna takmarkana af völdum COVID – 19 var því miður ekki hægt að halda formlega vígsluathöfn en nú stendur til að bæta úr því.

Fimmtudaginn 16. júní verður því formleg vígsluhátíð Lyngholts haldin og hefst athöfnin kl. 14:00. Að lokinni stuttri hátíðardagskrá verður fólki boðið að ganga um húsnæði skólans og skoða það og þiggja léttar veitingar.

 Allir velkomnir!

Starfsfólk og nemendur í Lyngholti

Frétta og viðburðayfirlit