mobile navigation trigger mobile search trigger
03.10.2022

Vinnustofur vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð.

Vinnustofur eru haldnar í dag vegna umsókna í Uppbyggingarsjóð. Hægt verður að fá ráðgjöf og aðstoð við gerð umsókna:

Neskaupstaður: 3. október kl. 13:30–15:30 í Múlanum
Reyðarfjörður: 3. október kl. 16:30–18:30 í Austurbrú

Við hvetjum einstaklinga og fyrirtæki með hugmyndir á sviði atvinnu, nýsköpunar og menningar til að koma og skoða möguleikana. Verkefnahugmyndir af öllum stærðargráðum eiga erindi.
Frekari upplýsingar eru hér

Frétta og viðburðayfirlit