Bæjarráð
425. fundur
20. apríl 2015 kl. 08:30 - 00:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Jón Björn Hákonarson Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Varamaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Lagt fram sem trúnaðarmál, yfirlit yfir rekstur janúar - febrúar 2015 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - mars 2015.
2.
Fjarðabyggð til framtíðar
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Bæjarstjórn samþykkti á fundi 15. apríl 2015, að vísa skýrslunum til umfjöllunar nefnda sveitarfélagsins og fól bæjarráði að vinni að útfærslu á endanlegum tillögum sem lagðar verði fyrir bæjarstjórn í maí og júní nk. Opnir kynningarfundir verða haldnir miðvikudaginn í þessari viku fyrir almenning kl. 17:30 í Neskaupstað og kl. 20:30 á Reyðarfirði.
Framhaldið verður vinnu við úrvinnslu fjárhagslegra upplýsinga í skýrslunum.
Framhaldið verður vinnu við úrvinnslu fjárhagslegra upplýsinga í skýrslunum.
3.
Tjaldsvæði Fjarðabyggð 2015
Lögð fram tilboð og verklýsingar frá bjóðendum en alls bárust 4 tilboð. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra að hefja viðræður við Landamerki ehf. sem er eini aðilinn sem bauð í rekstur allra tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Bæjarráð staðfestir ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að taka tilboði frá Landmerki ehf. og felur bæjarstjóra undirritun samnings.
4.
Valhöll Eskifirði - notkun á félagsheimilinu
Framlagt bréf áhugahóps um rekstur félagsheimilisins Valhallar á Eskifirði sem óskar eftir að taka við rekstri þess til að fjölga viðburðum í húsinu.
Bæjarráð þakkar erindið en vísar til samkomulags sem er í gildi við núverandi umsjónaraðila, Félag eldri borgara á Eskifirði, þar sem sá möguleiki er fyrir hendi að hægt sé að halda viðburði í húsinu í samstarfi við umsjónaraðilann. Þá er verið að vinna að tillögum í tengslum við verkefnið Fjarðabyggð til framtíðar sem fjallar m.a. um rekstur félagsheimila.

5.
Framkvæmdir við Strandgötu 73 Eskifirði
Framlagt bréf Smára Jensen Jónassonar og Klöru Lindar Guðmundsdóttur um lóðamörk eignarlóðar hans við Strandgötu Eskifirði og bílastæði á lóðinni.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
6.
Hugmyndir íbúasamtaka Reyðarfjarðar um notkun Strandgötu 7 ; 730
Framlagt bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar þar sem óskað er eftir að endurskoðuð verði ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að Strandgata 7 á Reyðarfirði verði rifin og hún verði afhent hóp til að vera með markað í húsinu auk annarrar starfsemi. Þá liggur fyrir beiðni frá Pegasus um að fá húsið áfram fyrir tökur á framhaldi á þáttaröðinni Fortitude.
Bæjarráð er tilbúið fyrir, sitt leyti, að greiða götu fyrir markað í húsnæðinu svo lengi sem það samrýmist þörfum Pegasus fyrir tökustað. Ekki verði um beint fjárframlag sveitarfélagsins að ræða til endurbóta á húsnæðinu. Þá verði húsið rifið að afloknum tökum á þáttaröðinni sbr. fyrri ákvarðanir um uppbyggingu miðbæjar á Reyðarfirði.
Vísað til umsagnar hafnarstjórnar, sem eiganda hússins.

7.
Fjarskiptamál - Póstfang 730 Fjarðbyggð
Framlagður tölvupóstur Ásmundar Ásmundssonar vegna lélegra útsendinga Rásar 2 á Reyðarfirði og brotajárns sem komið er yfir mön sem afmarkar athafnasvæði Hringrásar á Reyðarfirði.
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir ábendinguna og felur forstöðumanni stjórnsýslu að kanna útsendingar Rásar 2 og koma ábendingum á framfæri. Þá er umhverfisstjóra falið að koma ábendingum um brotajárnsuppsöfnun á framfæri við Hringrás.

8.
Vinnuskóli 2015
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi vinnuskóla árið 2015.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrirkomulagið fyrir sitt leyti og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögur framkvæmdasviðs um skipulag vinnuskólans 2015.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fyrirkomulagið fyrir sitt leyti og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögur framkvæmdasviðs um skipulag vinnuskólans 2015.
9.
Nefndaskipan Sjálfstæðisflokks 2014 - 2018
Framlögð tillaga að breytingum á skipan varamanns Sjálfstæðisflokks í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
Út fer Óskar Þór Hallgrímsson og í stað hans kemur Dýrunn Pála Skaftadóttir.
Út fer Óskar Þór Hallgrímsson og í stað hans kemur Dýrunn Pála Skaftadóttir.
10.
Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2015
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 30. mars 2015.
11.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 116
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. apríl 2015.
12.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 11
Fram lögð til kynningar fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 16. apríl 2015.