Fara í efni

Bæjarráð

481. fundur
11. júlí 2016 kl. 08:30 - 00:00
í Egilsbraut 1, Neskaupstað
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Formaður
Elvar Jónsson Varamaður
Valdimar O Hermannsson Varaformaður
Gunnar Jónsson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 1602052
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - maí 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - júní 2016.
2.
715 Þingholtsvegur 5 - kauptilboð
Málsnúmer 1606043
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Framlagt kauptilboð og samþykkt gagntilboð í Þinghólsveg 5 í Mjóafirði að fjárhæð 4 milljónir kr.
Bæjarráð samþykkir sölu fasteignarinnar og felur bæjarstjóra að undirrita gögn tengd sölunni. Eignin er seld með kvöð um að hún verði ekki flutt af núverandi staðsetningu sinni.
3.
Kostnaður við vinnu lögfræðings vegna samþykkta um umgengni og þrifnað...
Málsnúmer 1607013
Framlagt bréf framkvæmdastjóra HAUST þar sem upplýst er að Heilbrigðisnefnd Austurlands samþykkir að greiða helming í lögfræðikostnaði vegna vinnu við samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
4.
Skipulagning og þróun verndarsvæða í byggð
Málsnúmer 1607014
Erindi Minjastofnunar Íslands er varðar styrki vegna þróunar verndarsvæða í byggð.
Vísað til úrvinnslu sviðsstjóra framkvæmda-, umhverfis og veitusviðs og til kynningar í menningar- og safnanefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
5.
Ljósá - ofanflóðaframkvæmdir
Málsnúmer 1602108
Þennan lið dagskrár sat sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.
Farið yfir forsendur útboðs vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Ljósá á Eskifirði vegna ofanflóðavarna.
6.
735 Strandgata 12 - lóðamál
Málsnúmer 1301195
Þennan lið dagskrár sat sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til umfjöllunar. Lagt fram til kynningar bréf vegna lóðarmála að Strandgötu 12 á Eskifirði til lóðarhafa. Fjallar um nýtingu lóðarinnar.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti ráðstafanir í lóðarmálum.
7.
Norðfjarðarflugvöllur - klæðning
Málsnúmer 1410115
Þennan lið dagskrár sat sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.
Kynntar viðræður við tilboðsgjafa um endurbætur á flugvelli í Neskaupstað og verkáætlanir vegna framkvæmdanna.
Bæjarráð samþykkir með vísan til samþykktar bæjarstjórnar frá 9. júní s.l. drög að samningi um framkvæmdir við Norðfjarðarflugvöll og felur bæjarstjóra að útfæra samning og undirrita.
8.
Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði
Málsnúmer 1201079
Framlögð beiðni Skipulagsstofnunar um umsögn vegna matsáætlunar fyrir fyrirhugaða 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi í eldisstöð Laxa fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði.
Vísað til skipulags- og byggingarfulltrúa og framkvæmdastjóra hafna.
9.
Félagsstarf eldri borgara á Fáskrúðsfirði
Málsnúmer 1204107
Framlagður samningur til staðfestingar vegna félagsstarfs aldraðra á Fáskrúðsfirði og minnisblað deildarstjóra búsetuþjónustu.
Bæjarráð staðfestir samning.
10.
Hraðbanki á Stöðvarfirði
Málsnúmer 1605087
Framlagt til kynningar bréf bankastjóra Landsbankans frá 30.júní s.l. er varðar hraðbanka og reiðufjárafgreiðslu á Stöðvarfirði auk bréfa bæjarstjóra til forsvarsmanna bankans sama efnis frá 13.júní.
Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkir sínar um mikilvægi hraðbankaþjónustu á Stöðvarfirði.
11.
Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2016
Málsnúmer 1603017
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 841, lögð fram til kynningar.
12.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 148
Málsnúmer 1607001F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 148, lögð fram til staðfestingar í umboði bæjarstjórnar.
Fundargerð staðfest af bæjarráði.