Fara í efni

Bæjarráð

881. fundur
3. febrúar 2025 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Málsnúmer 2306119
Framlögð að nýju til samþykktar drög að samningi Fjarðabyggðar og HSA um samþættingu stuðningsþjónustu í verkefninu Gott að eldast. Breytingar hafa verið kynntar meðal starfsmanna.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
2.
Umsókn um styrk til hátíðarinnar BigJump
Málsnúmer 2501216
Framlögð umsókn frá Wojciech Zdzislaw Grzelak um styrk vegna BigJump hátíðarinnar.
Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar stjórnar menningarstofu.
3.
Kauptilboð í Sólbakka 7, Breiðdalsvík
Málsnúmer 2501215
Lagt fram tilboð í fasteignina Sóbakki 7 á Breiðdalsvík.
Bæjarráð hafnar tilboði og felur fjármálastjóra að gera gagntilboð.
4.
Stefnumörkun Lögreglustjórans á Austurlandi
Málsnúmer 2402151
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á stjórnvöld að efla löggæslu á Austurlandi, þar sem núverandi mönnun telst ófullnægjandi og álag á lögreglumenn mikið á jafn landfræðilega stóru svæði og Austurland er.
Svæðið er mikilvægur hlekkur í almannavarnakerfi landsins, auk þess sem landamæraeftirlit fer fram á flugvellinum á Egilsstöðum og á landamærahöfnum umdæmisins. Skortur á lögreglumönnum hefur áhrif á getu löggæslu til að sinna lögbundnum verkefnum.
Bæjarráð leggur einnig áherslu á að efla tækjakost lögreglunnar, sérstaklega með tilliti til landamæraeftirlits, til að tryggja öfluga og skilvirka löggæslu á svæðinu.
5.
Fræðslu fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna
Málsnúmer 2501193
Framlögð ósk Miðstöðvar slysavarna barna um styrk v/ fræðslu fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum.
Bæjarráð samþykkir að styrkja fræðsluna um umbeðna fjárhæð.
6.
Nefndaskipan Framsóknarflokks 2022-2026
Málsnúmer 2205170
Tilnefning fulltrúa í hafnarstjórn í stað Birgis Jónssonar vegna tímabundis leyfis hans frá störfum sem fulltrúi í hafnarstjórn til 1 júní nk. Jón Björn Hákonarson tekur sæti Birgis meðan á leyfi hans stendur.
7.
Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Málsnúmer 2501185
Farið yfir hugmyndir R101 ehf. um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og skipulagsmál svæðisins.
8.
Endurhönnun leiðakerfis landsbyggðarstrætó
Málsnúmer 2501210
Framlögð til kynningar fundargerð og kynningarefni frá Vegagerðinni vegna endurhönnunar almenningssamgangna á landsbyggðinni.
9.
Ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla
Málsnúmer 2501190
Framlögð ályktun frá skólaráði Eskifjarðarskóla sem lýsir yfir áhyggjum sínum af aðstöðuleysi eskfirskar barna til hreyfingar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar fyrir erindið. Það er fullur skilningur á þeim áhyggjum sem fram koma í bréfinu og þeirri mikilvægu áherslu sem þar er lögð á lýðheilsu, hreyfingu og aðgang barna og samfélagsins alls að viðunandi íþróttaaðstöðu. Eins og fram kemur í meirihlutasamningi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ríkur vilji til að tryggja uppbyggingu íþróttaaðstöðu á Eskifirði. Í því ljósi er unnið hörðum höndum að því að tryggja úrbætur sem allra fyrst. Bæjarráð tekur undir með bréfriturum að nauðsynlegt sé að bregðast við þeirri stöðu sem nú er uppi og leggja áherslu á lausnir sem bæta hreyfingaraðstöðu og stuðla að bættri lýðheilsu og velferð barna og íbúa Eskifjarðar. Bæjarráð mun fylgja eftir þessari brýnu umræðu og tryggja að íþróttaaðstaða á Eskifirði verði sett í forgang.
10.
Fundargerðir - samtaka svf á köldum svæðum 2025
Málsnúmer 2501180
Framlögð til kynningar fundargerð 78. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
11.
Fundargerðir stjórnar Orkusveitarfélaga 2025
Málsnúmer 2501007
Framlögð til kynningar 79.fundargerð fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
12.
Fjölskyldunefnd - 24
Málsnúmer 2501016F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. janúar.
13.
Hafnarstjórn - 321
Málsnúmer 2501018F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 27. janúar.
14.
Öldungaráð - 14
Málsnúmer 2411027F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð öldungaráðs frá 2. desember.