Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

68. fundur
19. júlí 2013 kl. 16:30 - 18:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Agnar Bóasson Formaður
Eiður Ragnarsson Varaformaður
Gunnar Ásgeir Karlsson Aðalmaður
Guðmundur Elíasson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Elíasson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
740 - Deiliskipulag vinnubúða og athfnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði
Málsnúmer 1305011
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi vinnubúða og athgafnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags.18.07.2013 og felur meðal annars í sér að vinnubúðir og athafnasvæði framkvæmdaaðila er afmarkað á tveimur stöðum. Athafnasvæði verður við gangamunna og vinnubúðir í landi Kirkjubóls. Um er að ræða tímabundna notkun svæðis. Að framkvæmdatíma liðnum verður vinnubúðir og athafnasvæði fjarlægt. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.