Fjölskyldunefnd
30. fundur
31. mars 2025 kl. 16:15 - 17:15
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Pálína Margeirsdóttir varaformaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Magnús Árni Gunnarsson
Fundargerð ritaði:
Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá
1.
Öldungaráð
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingar á erindisbréfi öldungaráðs
2.
Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2025
Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu að breytingu á gjaldskrá líkamsræktarstöðva varðandi aðgengi utan hefðbundins opnunartíma. Fjölskyldunefnd leggur til að gjaldið verði 1000 kr.
3.
Vallavinnusamningur 2023-2025
Fjölskyldunefnd samþykkir tillögu stjórnanda íþrótta- og frístundamála að gerð vallavinnusamnings við KFA vegna allra fótboltavalla Fjarðabyggðar.
4.
Ungmennaráð - Framtíð íþrótta í Fjarðabyggð
Fjölskyldunefnd þakkar ungmennaráði fyrir erindið og felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum. Jafnframt skal senda erindi Ungmennaráðs til kynningar innan íþróttafélaga í Fjarðabyggð.
5.
Leikfélög og Egilsbúð
Stjórnanda Íþrótta- og frístundamála falið að ræða við stjórnanda VA um samvinnu og samstarf þegar um verkefni eins og leiksýningar er að ræða.
6.
Ungmennaráð - 19
Fundargerð ungmennaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd
7.
Ungmennaráð - 16
Fundargerð ungmennaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd
8.
Ungmennaráð - 15
Fundargerð ungmennaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd
9.
Fjölmenningarráð - 1
Fundargerð fjölmenningaráðs Fjarðabyggðar lögð fyrir Fjölskyldunefnd