Fara í efni

Fræðslunefnd

14. fundur
14. apríl 2015 kl. 19:30 - 00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Pálína Margeirsdóttir Formaður
Lísa Lotta Björnsdóttir Varaformaður
Óskar Þór Guðmundsson Aðalmaður
Margrét Perla Kolka Leifsdóttir Varamaður
Kjartan Glúmur Kjartansson Varamaður
Þóroddur Helgason Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þóroddur Helgason fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Innkaupareglur 2015 - endurskoðun
Málsnúmer 1503141
Skv. 34. gr. innkaupareglna skulu fjárhæðir endurskoðaðar ár hvert af bæjarstjórn Fjarðabyggðar, að fenginni tillögu fjármálastjóra, sbr. 8. gr. reglnanna. Innkaupareglurnar skulu yfirfarnar og framkvæmd þeirra metin í fyrsta sinn innan árs frá gildistöku þeirra en þær tóku gildi 30.maí 2013.
Bæjarráð samþykkir að vísa núgildandi reglum til nefnda sveitarfélagsins til umsagnar og reglurnar verða teknar til endurskoðunar í bæjarráði að lokinni yfirferð nefnda. Fræðslunefnd telur að reglurnar hafi nýst vel og gerir ekki athugasemdir við þær.
2.
Sundkennsla í Grunnskóla Eskifjarðar
Málsnúmer 1503066
Bæjarráð felur fræðslustjóra að að skoða með fyrirkomulag sundkennslu á Eskifirði verði með sama fyrirkomulagi og sundkennslu á Norðfirði. Jafnframt vísað til umræðu í fræðslunefnd. Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem fram kemur að magn sundkennslu pr. nemanda er eins á Eskifirði og Norðfirði, en tímasetning kennslunnar ólík. Á Norðfirði er einn tími á viku yfir skólaárið og kennt eftir hádegi, en á Eskifirði eru kenndir þrír tímar á viku að hausti og vori. Einnig kemur fram að hvort fyrirkomulag um sig skilar nemendum jafngóðri sundkennslu og kostnaður er svipaður. Í minnisblaðinu kemur fram að aðstæður geti verið breytilegar milli staða. Erfiðara hefur verið að halda góðum hita í sundlauginni á Eskifirði yfir vetrarmánuðina og oftar hefur þurft að fella niður sundkennslu vegna hitastigs í lauginni og þar sem veður er að jafnaði betra að hausti og vori þá hefur sá tími verið valinn til kennslu. Ábreiða á sundlaugina á Eskifirði sem sett var upp á síðasta ári og lagfæring á hitunarbúnaði sem unnið er að, geta breytt forsendum. Í minnisblaðinu kemur fram að eðlilegast sé að skólastjórar meti aðstæður á hverjum stað líkt og verið hefur og velji það fyrirkomulag sem hentar best hverjum skóla. Fræðslunefnd er sammála niðurstöðu minnisblaðsins.
3.
Fjarðabyggð til framtíðar
Málsnúmer 1411075
Lögð fram til kynningar skýrsla Skólastofunnar, mat á tillögum um skipan skólamála í Fjarðabyggð og skýrsla KPMG, Fjarðabyggð til framtíðar.
4.
Kennslutímamagn grunnskóla 2015-2016
Málsnúmer 1504064
Fyrir fundinum liggur tillaga fræðslustjóra um útdeilingu kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð. Úthlutunin byggir á reglum um úthlutun kennslutímamagns til grunnskólanna í Fjarðabyggð sem samþykktar voru í byrjun desember 2014 með þeim fyrirvara að þær færu til skoðunar í þeirri vinnu sem KPMG og Skólastofan myndu framkvæma í byrjun árs 2015. Í skýrslum frá fyrrnefndum aðilum er ekki gerð athugasemd við reglurnar. Fræðslustjóri fór yfir kennslutímamagn hvers skóla fyrir skólaárið 2015-2016 og tímamagn til annarra starfa innan skóla. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu með fyrirvara um breytingar á stjórnun sem átt gætu sér stað í fyrirliggjandi vinnu um skýrslur Skólstofunnar og KPMG. Fræðslunefnd telur mikilvægt að metið verði með einhverjum hætti áhrif breyttra úthlutunarreglna.