Landbúnaðarnefnd
13. fundur
5. maí 2015 kl. 13:00 - 00:00
í Molanum
Nefndarmenn
Sigurður Baldursson Formaður
Halldór Árni Jóhannsson Aðalmaður
Ármann Elísson Aðalmaður
Þórhalla Ágústsdóttir Aðalmaður
Marsibil Erlendsdóttir Aðalmaður
Guðmundur Elíasson Embættismaður
Anna Katrín Svavarsdóttir Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Anna Katrín Svavarsdóttir Umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð
Lagt fram minnisblað um úthlutun og gjaldtöku á leigulandi í landi Fjarðabyggðar, drög að samningi um leiguland í landi Fjarðabyggðar og reglum um leigulönd.
Landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi fyrirkomulag en vísar málinu aftur til framkvæmdasviðs til frekari vinnslu.
Landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti eftirfarandi fyrirkomulag en vísar málinu aftur til framkvæmdasviðs til frekari vinnslu.
2.
Umsóknum afnota af landi til að efla æðarvarp í landi Fjarðabyggðar
Frá 422. fundir bæjarráðs. Framlagt bréf Gunnars B. Ólafssonar þar sem óskað er afnota af landi Fjarðabyggðar í botni Reyðarfjarðar frá landamerkjum Sléttu og Fjarðabyggðar og út á Bjargareyri við norðanverðan Reyðarfjörð. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til umsagnar landbúnaðarnefndar.
Bæjarráð óskar eftir við landbúnaðarnefnd að við umsögn hennar verði heildstætt hugað að ráðstöfun nytja og hlunninda lands í eigu sveitarfélagsins.
Landbúnaðarnefnd tekur jákvætt í ráðstöfun lands í eigu Fjarðabyggðar til nytja og hlunninda og felur framkvæmasviði að gera tillögu að reglum og gjaldtöku. Nefndin felur framkvæmdasviði að svara umsókn Gunnars B. Ólafssonar.