Skipulags- og framkvæmdanefnd
26. fundur
19. febrúar 2025 kl. 16:15 - 18:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Svanur Freyr Árnason Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Grunnskólinn á Reyðarfirði, klæðning og gluggar
Niðurstöður verðkönnunar á endurbótum á austurhlið elstu byggingar Grunnskóla Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Launafl ehf.
Jón Grétar Margeirsson sat þennan lið.
Jón Grétar Margeirsson sat þennan lið.
2.
Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Framlögð skipulags- og matslýsing vegna breytinga á aðal- og deiliskipulagi í Dal á Eskifirði. Breytingin felur í sér að verið er að færa reit fyrir tjaldsvæði neðan Dalbrautar ofan Dalbrautar utan við bæinn Eskifjörð. Með því stækkar fyrirhugað svæði fyrir nýtt deiliskipulag íbúðarsvæðis í dalnum á Eskifirði. Breytingar voru áður teknar fyrir á fundi nefndarinnar 7. febrúar 2024 vegna breyttrar staðsetningar á afþreyingar- og ferðamannasvæði og stækkun á íbúðarsvæði í Dal 3 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar og gerð nýs deiliskipulags og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.
Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26
Umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar. Breytingin felur í sér stækkun og sameiningu lóða að Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26 í eina lóð, þ.e. Egilsbraut 22. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir eigendum nærliggjandi lóða.
4.
Framkvæmdaleyfi landmótun Digranesvegur, Mjóeyrarhöfn
Umsókn Fjarðabyggðarhafna um framkvæmdaleyfi vegna landmótunar við Digranesveg, Mjóeyrarhöfn, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framkvæmdina og felur stjórnanda skipulags- og byggingarmála að gefa út framkvæmdaleyfi að uppfylltum skilyrðum.
5.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Norðfirði
Míla óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
6.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Breiðdalsvík
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
7.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Stöðvarfirði
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
8.
Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Breyting á vatnsrás Nes- og Bakkagil. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tilfærslu á vatnsrás fyrir varnagarða við Nes- og Bakkagil og er það innan diliskipulagsmarka svæðisins með lítls háttar breytingum á verkmörkum.
9.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði
Framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
10.
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa áframhaldandi vinnu við samninginn og leggja fyrir nefndina að nýju.
11.
Fundaáætlun SFN 2025
Fundaáætlun SFN 2025. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur formanni að gera fundaáætlun og leggja fyrir á næesta fund.