Fara í efni

Ungmennaráð

19. fundur
5. mars 2025 kl. 16:30 - 17:45
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Máni Franz Jóhannsson formaður
Eyvör Rán Ívarsdóttir aðalmaður
Adam Peta aðalmaður
Margeir Ríkarðsson aðalmaður
Vöttur Þeyr Ívarsson aðalmaður
Bergþóra Líf Heiðdísardóttir aðalmaður
Sölvi Hafþórsson aðalmaður
Starfsmenn
Magnús Árni Gunnarsson embættismaður
Karitas Harpa Davíðsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði:
Magnús Árni Gunnarsson
Dagskrá
1.
Skólabreytingar
Málsnúmer 2501074
Frestað til 3 apríl.
2.
Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura
Málsnúmer 2503014
Ungmennaráð hvetur Skipulags- og framkvæmdanefnd til að endurskoða fjölda og staðsetningu ruslatunna í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á göngustíga, almenningssvæði og vinsælar útivistarleiðir.
3.
Ungmennaráð - Framtíð íþrótta í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2503013
Ungmennaráð Fjarðabyggðar ályktar að aukið samstarf eða formleg sameining íþróttafélaga gæti leitt til skilvirkara og hagkvæmara íþróttastarfs, þar sem fjármagn, aðstaða og mannauður, bæði þjálfarar og sjálfboðaliðar, nýtast betur. Ráðið telur að þannig verði starfsemi félaganna eftirsóknarverðara fyrir iðkendur, foreldra, sjálfboðaliða og samfélagið í heild. Um leið er mikilvægt að deildir geti varðveitt menningu og hefðir hvers byggðarlags. Jafnframt ítrekar ráðið að raddir ungs fólks heyrist í þessari stefnumótun, enda eru ungmenni stór hluti iðkenda.
4.
Sameiginlegar föstudagsopnanir í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2411175
Ungmennaráð vill koma að skipulagi sameiginlegum föstudagsopnana með starfsfólki félagsmiðstöðva.