Fara í efni
18.09.2025 Fréttir

Nýr vefur sveitarfélagsins kominn í loftið

Deildu

Vefurinn hefur verið í undirbúningi og vinnslu undanfarið rúmt ár í samstarfi við Stefnu. Starfsfólk skrifstofu bæjarstjóra hefur leitt verkefnið en fulltrúar allra sviða hafa komið að vinnunni.

Við þróun á vefnum var meðal annars lögð áhersla á notendavæna og nútímalega hönnun, aðgengi, góða leit, lifandi miðlun og að vefurinn virki vel í öllum tækjum, einkum snjallsímum.

Þrátt fyrir að vefurinn sé formlega opinn þá er vinnu við nýjan vef ekki að fullu lokið og ýmis atriði enn í vinnslu og frekari þróun. Ef þið hafið hugmyndir fyrir vefinn eða sjáið eitthvað sem má betur fara þá væri vel þegið að fá ábendingar á netfangið vefumsjon@fjardabyggd.is.