Bæjarráð
517. fundur
10. apríl 2017
kl.
08:30
-
10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Jens Garðar Helgason
Formaður
Jón Björn Hákonarson
Varaformaður
Eydís Ásbjörnsdóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Páll Björgvin Guðmundsson
Bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar
Skýrsla Capacent um greiningu á húsnæðismarkaði í Fjarðabyggð lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar. Vinna við stefnu og skýrslan verður tekin fyrir að nýju í bæjarráði.
2.
Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)
Kynnt opnun tilboða vegna sölu á Bleiksárhlíð 56 Eskifirði - gömlu Hulduhlíð. Eitt sameiginlegt tilboð barst í eignina að fjárhæð kr. 48.000.000. frá Kraft Pípulagnir ehf. og Járnborg ehf.
Bæjarráð samþykkir að fengin verði fram afstaða ríkisins til tilboðsins. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta bæjarráðsfundi.

3.
Evrópa Unga fólksins #getActive
Heimsókn forráðamanna ráðstefnu Ungs fólks ( Evrópa Unga fólksins - Get Active ) sem haldin var á Reyðarfirði síðastliðið sumar.
Farið yfir helstu niðurstöður ráðstefnunnar.

4.
Nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
Fyrir liggur bréf frá Guðjóni Haukssyni forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands en þar er fjallað um málefni aldraðra á Austurlandi. Bæjarráð og bæjarstjóri hafa á undanförnum vikum átt fundi með forráðamönnum heilbrigðisstofunar þar sem m.a. hefur verið fjallað um mikla þörf fyrir aukin hjúkrunarrými i Fjarðabyggð og þá sér í lagi í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykktir eftirfarandi ályktun.
"Bæjarráð Fjarðabyggðar fer þess á leit við velferðaráðuneytið og ráðherra heilbrigðismála, að hefja nú þegar undirbúning og framkvæmd við nýtt hjúkrunarheimili í Neskaupstað. Af greiningu Heilbrigðisstofnunar Austurlands má ráða að mikil þörf er fyrir hjúkrunar- og hvíldarrými fyrir aldraða í sveitarfélaginu. Þá uppfyllir hjúkrunardeild heilbrigðisstofnunar í Neskaupstað ekki þær kröfur sem gerðar eru til hjúkrunarheimila er varðar aðbúnað heimilisfólks og starfsmanna eða þau lágmarksviðmið sem Velferðaráðuneytið gefur út um aðbúnað fyrir slík heimili. Um leið og nýtt hjúkrunarheimili yrði byggt myndi skapast á umdæmissjúkrahúsinu tækifæri til að stórefla endurhæfingu sem gerir einstaklingum mögulegt að búa lengur heima en einnig mun sjúkrahúsið vera betur í stakk búið til þess að aðstoða enn frekar við fráflæðisvanda annara sjúkrastofnana."
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma framangreindri ályktun á framfæri við Velferðaráðuneyti og heilbrigðisráðherra.

5.
Forkaupsréttur Barða NK 120
Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð taki afstöðu til forkaupsréttar vegna sölu á Barða NK 120.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsréttarheimild sína vegna sölu á Barða NK 120. Bæjarráð hvetur Síldarvinnsluna til að tryggja að störf sjómanna tapist ekki við söluna.

6.
Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun
Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðahafna um opnun tilboða í dælingu fyllingar undir 2. áfanga Mjóeyrarhafnar. Tvö tilboð bárust í verkið frá Björgun ehf. og Jan De Nul.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að tilboði Jan De Nul í dælingu fyllingar verði tekið og vísar endanlegri ákvörðun til hafnarstjórnar.

7.
306.mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði),
Frá síðasta fundi bæjarráðs.
Framlagt frumvarp ráðherra sveitarstjórnarmála um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði. Jöfnunarsjóður greiða sveitarfélögum á árinu 2017 sérstakt framlag sem samsvarar 1,06% af tekjum ríkissjóðs af sérstökum skatti á fjármálafyrirtæki. Umsagnir þurfa að berast eigi síðar en 18. apríl nk. Framlagt minnisblað fjármálastjóra um frumvarpið.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að veita jákvæða umsögn um frumvarpið.

8.
Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands - 4.apríl 2017
Lögð fram til kynningar gögn frá aðalfundi Sparisjóðs Austurlands sem haldinn var 4.apríl sl.
9.
Fundagerðir - samtök orkusveitarfélaga 2017
Lögð fram til kynningar fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga frá 10.mars sl.
10.
Fundarboð - Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs
Framlag fundarboð ársfundar Stapa lífeyrissjóðs, sem haldinn verður í Skjólbrekku Mývatnsveit 3. maí nk. kl. 13:00.