Fara í efni

Bæjarráð

518. fundur
24. apríl 2017 kl. 08:30 - 10:35
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Jens Garðar Helgason Formaður
Jón Björn Hákonarson Varaformaður
Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Gunnlaugur Sverrisson Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson Bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Umsögn vegna frumvarps til laga um skipulag haf- og strandsvæða
Málsnúmer 1612045
Bréf sem bæjarstjórar víða um land munu undirrita og senda umhverfis- og auðlindaráðherra, vegna frumvarps til laga um skipulag haf-og strandsvæða. Bæjarráð samþykkir innihald bréfs og felur bæjarstjóra að undirrita það.
2.
Sveitarfélög sem reka HAUST
Málsnúmer 1704050
Minnisblað Heilbrigðiseftirlits Austurlands til sveitarfélaga um skýrslu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um Matvælastofnun (MAST), frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (UST) og frumvarp til breytinga á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í öllum þessum gögnum eru lagðar fram tillögur um verkefnatilfærslu og breytingar á starfsemi og verksviði heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Sveitarfélög og sveitarstjórnarmenn eru hvött til að vera vel vakandi, kynna sér efni þessara gagna og standa vörð um verkefni sem sveitarfélögin hafa á sinni forsjá. Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega áðurnefndum breytingum sem fallnar eru til að veikja hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna. Það skýtur skökku við að færa allt eftirlit og faglega umsjón frá nærsvæðum til suðvesturhornsins. Dæmin sanna, svo ekki verður um villst, að UST og MAST hafa ekki getu til að sinna eftirliti um land allt. Hér virðist vera á ferðinni barátta um opinbert fjármagn frekar en að tryggð sé góð þjónustu við íbúa og fyrirtæki.
3.
Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Málsnúmer 1608100
Félags- og jafnréttismálaráðherra beinir því til sveitarfélaga að taka tillit til leiðbeinandi reglna velferðarráðuneytisins um sérstakan húsnæðisstuðning, um að meta skuli þörf fyrir slíkan stuðning á grundvelli framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna, í stað þess að byggja einungis á hlutlægum tekju- og eignaviðmiðum. Vísað til umfjöllunar í félagsmálanefnd og að því loknu óskar bæjarráð eftir minnisblaði frá fjölskyldusviði vegna málsins.
4.
Kaupvangur - beiðni um styrk 2017 vegna endurgerðar hússins
Málsnúmer 1704071
Framlögð styrkumsókn vegna fasteignaskatts 2017 fyrir Hafnargötu 15 Fáskrúðsfirði - Kaupvang sem er friðað hús. Umsóknin er í samræmi við 3. gr. reglna Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignagjalda. Fasteignaskattur hússins 2017 nemur kr. 54.750. Umsögn skiplags- og byggingarfulltrúa er meðfylgjandi. Bæjarráð samþykkir styrkumsókn.
5.
Öryggismál og eldvarnir jarðganga
Málsnúmer 1704074
Lögð fram til kynningar skýrsla er varðar kynnisferð til Noregs dagana 6.-9. mars 2017. Jafnframt lagður fram listi yfir búnaðarþörf slökkviliðs vegna jarðganga. Vísað til bæjarstjóra til frekari skoðunar.
6.
Upplýsingaskilti við minnisvarða um franska fiskimenn við Íslandsstrendur
Málsnúmer 1704078
Bréf Guðrúnar Einarsdóttur er varðar hugmyndir um upplýsingaskilti á Fáskrúðsfirði vegna minnisvarða um franska fiskimenn við Íslandsstrendur. Vísað til menningar- og safnanefndar.
7.
Norræna ráðherranefndin - samstarfsverkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgum á Norðurlöndum
Málsnúmer 1704080
Upplýsingar um samnorrænt verkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgum á Norðurlöndum. Hægt er sækja um þáttöku í verkefninu til 29.maí nk. Bæjarritara falið að athuga með þátttöku í verkefninu.
8.
Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)
Málsnúmer 1702215
Kynnt opnun tilboða vegna sölu á Bleiksárhlíð 56 Eskifirði - gömlu Hulduhlíð. Eitt sameiginlegt tilboð barst í eignina að fjárhæð kr. 48.000.000. frá Kraft Pípulagnir ehf. og Járnborg ehf. Fyrir liggur afstaða fjármálaráðuneytisins f.h. ríkisins, um að hafna tilboðinu. Bæjarráð hafnar tilboði og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.
9.
Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 1611104
Skýrsla Capacent um greiningu á húsnæðismarkaði í Fjarðabyggð var lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar á síðasta fundi. Umræða um skýrsluna og næstu skref í mótun húsnæðisstefnu Fjarðabyggðar. Umræðu um skýrsluna verður haldið áfram á næsta fundi. Skýrslu er vísað til umræðu í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
10.
Ráðning sviðstjóra veitusviðs
Málsnúmer 1702051
Alls sóttu tíu aðilar um stöðu sviðsstjóri veitusviðs, en staðan var auglýst þann 11. febrúar sl. Capacent ráðningar, í samráði við bæjarstjóra, hafa unnið að ráðningarferlinu. Í símasambandi við fundinn var Jóna Björg Sigurjónsdóttir ráðgjafi hjá Capacent ráðningum sem fór yfir ráðningarferlið og mat á umsækjendum. Fyrir liggur tillaga bæjarstjóra um að Þorsteinn Sigurjónsson verkfræðingur, verði ráðin forstöðumaður veitusviðs sveitarfélagsins. Tillögunni til stuðnings er vísað í faglegt mat sem unnið var af Capacent ráðningum. Þá er einnig í tillögunni vísað til mannauðsstefnu sveitarfélagsins og reglur þess um ráðningarferli hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð staðfestir tillögu bæjarstjóra um að ráða Þorstein Sigurjónsson sem sviðsstjóra veitusviðs.
11.
Hraðakstur við leikskólann Dalborg Eskifirði
Málsnúmer 1704100
Bréf foreldrafélags Leikskólans Dalborgar er varðar hraðakstur við skólann. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
12.
Fundur almannavarnarnefndar 19.apríl 2017
Málsnúmer 1704075
Fundargerð fundar almannavarnarnefndar Fjarðabyggðar, Breiðdalshrepps og Djúpavogshrepps frá 19.apríl 2017, lögð fram til kynningar. Bæjarráð tekur undir að skoðað verði að sett verði á laggirnar ein almannavarnarnefnd fyrir allt Austurland, en áfram verði starfandi tvær aðgerðastjórnir.
13.
Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2017
Málsnúmer 1702019
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 849, lögð fram til kynningar.
14.
Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2017
Málsnúmer 1702036
Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 15.mars 2017, lögð fram til kynningar.
15.
Barnaverndarfundagerðir 2017
Málsnúmer 1701220
Fundargerð barnaverndarnefndar nr 72. lögð fram til kynningar.
16.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 173
Málsnúmer 1704006F
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 173 frá 10.apríl 2017, lögð fram til kynningar.
17.
Hafnarstjórn - 177
Málsnúmer 1704005F
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 177 frá 10.apríl 2017, lögð fram til kynningar.
18.
Hafnarstjórn - 178
Málsnúmer 1704007F
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 178 frá 18. apríl 2017, lögð fram til kynningar.