Fara í efni

Bæjarráð

757. fundur
4. júlí 2022 kl. 08:30 - 00:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Eftirlit með fjármálastjórn sveitarfélaga og fjármálum 2021
Málsnúmer 2206098
Lagt fram til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagsleg viðmið sveitarfélagsins.
2.
Framkvæmdasvið verkefni 2022
Málsnúmer 2204123
Lagt fram minnisblað um framkvæmdir ársins 2022 til kynningar. Mannvirkja- og veitunefnd fól sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir fjárhagslega stöðu byggingu íþróttahússins á Reyðarfirði við lok verkefnisins og leggja fyrir bæjarráð.
Farið yfir lokakostnað við framkvæmdir íþróttahússins á Reyðarfirði. Ljóst er að lokakostnaður er umfram fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð samþykkir að vísa umframkostnaði til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2022.
3.
Verklagsreglur vegna samskiptavanda í stofnunum Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2206116
Fram lagðar verklagsreglur til að taka á og leysa úr samskiptavanda í stofnunum Fjarðabyggðar ásamt lausnarferli og hlutverki stjórnenda.
Bæjarráð samþykkir reglurnar í umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi stendur.
4.
Umsókn um leigu á íþróttahúsinu á Breiðdal
Málsnúmer 2206119
Framlögð umsókn um leigu á íþróttahúsinu á Breiðdal vegna ættarmóts sem verður þann 15. og 16. júlí næstkomandi.
Bæjarráð getur því miður ekki orðið við beiðninni.
5.
Forvarna- og öryggisnefnd erindisbréf og fundargerðir
Málsnúmer 2110173
Framlögð fundargerð forvarnar- og öryggisnefndar frá 28. apríl 2022 til kynningar.
6.
Íslandsdagar 23. til 26. september Gravelines
Málsnúmer 2207002
Framlagt boð á Íslandsdaga í Gravelines 23. til 26. september nk.
Bæjarstjóra falið að ræða við forseta bæjarstjórnar um tilnefningu tveggja fulltrúa Fjarðabyggðar á Íslandsdaga.
7.
Endurskoðun samþykktar um bygginganefnd í Fjarðabyggð - síðari umræða
Málsnúmer 2206094
Vísað til síðari umræðu í bæjarráði í umboði bæjarstjórnar drögum að uppfærðri samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð vegna breytinga á samþykktum sveitarfélagsins.
Bæjarráð staðfestir samþykkt um bygginganefnd í Fjarðabyggð í umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði fullnaðarafgreiðsluheimild meðan á sumarleyfi hennar stendur.
8.
Fræðslunefnd - 112
Málsnúmer 2206005F
Fundargerð fræðslunefndar frá 15. júní lögð fram til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð fræðslunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.
9.
Mannvirkja- og veitunefnd - 1
Málsnúmer 2206017F
Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 29. júní sl. lögð fram til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð mannvirkja- og veitunefndar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr.
samþykkta Fjarðabyggðar.
10.
Hafnarstjórn - 280
Málsnúmer 2206016F
Framlögð fundargerð hafnarstjórnar frá 28. júní lögð fyrir fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerð hafnarstjórnar með umboði bæjarstjórnar sem falið hefur bæjarráði ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála meðan sumarfríi stendur sbr. 46. gr. samþykkta Fjarðabyggðar.