Fara í efni

Bæjarráð

766. fundur
26. september 2022 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda
Málsnúmer 2209168
Lögð fram til kynningar "Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda". Umsagnarfrestur er til og með 09.10.2022.
2.
Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma
Málsnúmer 2209175
Framlagt bréf leikskólastjóra í Fjarðabyggð um um opnunartíma leikskóla í Fjarðabyggð. Erindinu er vísað til fræðslunefndar til umfjöllunar.
3.
Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2022
Málsnúmer 2204177
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 1. september sl.
4.
Umsókn um stofnframlag á árinu 2022
Málsnúmer 2203070
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Hafnarbrautar í Neskaupstað og Árdals á Eskifirði.
5.
Úthlutun stofnframlaga ríkisins 2021
Málsnúmer 2112130
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Búðarmels á Reyðarfirði. Jafnframt samþykkir bæjarráð yfirtöku Brákar á kaupsamningi Fjarðabyggðar við Nýjatún ehf um Búðarmel.
6.
Umsókn um lóð Sæbakki 17
Málsnúmer 2209132
Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar um lóð að Sæbakka 17 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
7.
Umsókn um lóð Bakkabakki 2b
Málsnúmer 2209144
Lögð fram lóðarumsókn Vilhjálms Skúlasonar um lóð að Bakkabakka 2b, í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
8.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 3
Málsnúmer 2209021F
Fundargerð menningar- og safnastofnunar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu
9.
Hafnarstjórn - 284
Málsnúmer 2209020F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. september lögð fram til afgreiðslu
10.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 7
Málsnúmer 2209016F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. september tekin til afgreiðslu