Bæjarráð
772. fundur
14. nóvember 2022
kl.
08:30
-
11:15
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Ragnar Sigurðsson
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson
bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Snorri Styrkársson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson
Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Lagt fram sem trúnaðarmál rekstraryfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar janúar - september 2022 auk yfirlit yfir launakostnað og skatttekjur janúar - október 2022.
2.
Tjaldsvæði 2022
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra um rekstrarform tjaldsvæða í Fjarðabyggð. Bæjarráð er sammála um að hefja undirbúning að breytingu á rekstri tjaldsvæða í Fjarðabyggð til framtíðar. Bæjarstjóra falið umhald málsins.
3.
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2023
Hafnarstjórn hefur samþykkt fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2023 og vísaði tillögunni til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Gjaldskráin hefur hækkað sem nemur verðlagsbreytingum, nema aflagjöld sem hækka minna.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.
4.
Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2023
Félagsmálanefnd hefur samþykkt fyrir sitt leyti framlagða tillögu að gjaldskrá stoðþjónustu 2023, og vísaði henni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Gjaldskráin tekur hækkun m.v. verðlagsbreytingar um 4,9% auk þess sem breytingar eru gerðar á henni samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2023.
5.
Verkefni við mótun aðferðafræði til að mæta afleiðingum loftsagsbreytinga
Framlagt erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, Byggðastofnun og Skipulagsstofnu þar sem óskað eftir þátttöku nokkurra sveitarfélaga við að móta aðferðafræði fyrir sveitarfélög til þess að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga. Bæjarráð þakkar fyrir erindið en Fjarðabyggð mun ekki taka þátt í verkefninu að þessu sinni, en óskar eftir að fá að fylgjast með mótun aðferðarfræðarinnar.
6.
Íbúakönnun 2022
Framlagt bréf frá Gallup þar sem kynnt er könnun á viðhorfi íbúa til þjónustu. Undanfarin ár hefur Gallup mælt viðhorf íbúa til þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins. Niðurstöður nýtast við mat á frammistöðu sveitarfélaga bæði í samanburði við önnur sveitarfélög og fyrri frammistöðu. Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Upplýsingafulltrúa er falið að vera í sambandi við Gallup um framhald málsins.
7.
Kauptilboð í Austurveg 1 Reyðarfirði frá Tomasz Patryk
Framlagt kauptilboð Tomaszar Patryk í fasteignina Austurveg 1 á Reyðarfirði. Bæjarráð samþykkti tilboðið í tölvupósti á milli funda. Lagt fram til kynningar.
8.
Fjárframlag til bókakaupa
Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafnanna í Fjarðabyggð um fjárframlag til safnanna vegna bókakaupa. Bókakaup eiga að vera innan fjárhagsramma hvers árs. Vísað til bæjarritara til vinnslu.
9.
Áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið hefur vakið athygli á því að áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Bæjarritara er falið að rita umsögn um málið fyrir hönd Fjarðabyggðar.
10.
Samráð um frumvarp til breytinga á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga
Frumvarp til breytinga á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur verði lagt fram í samráðsgátt. Framlagt og kynnt.
11.
Notendaráð fatlaðs fólks
Stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu hefur óskað eftir tilnefningum þriggja kjörinna fulltrúa í notendaráð fatlaðs fólks. Bæjarráð samykkir að eftirtaldir aðilar verði fulltrúar í notendaráðinu:
Kamilla Borg Hjálmarsdóttir
Þórhallur Árnason
Eygerður Ósk Tómasdóttir
Kamilla Borg Hjálmarsdóttir
Þórhallur Árnason
Eygerður Ósk Tómasdóttir
12.
Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 3. Nóvember 2022
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands lögð fram til kynningar.
13.
Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2022
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 52 lögð fram til kynningar.
14.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 11
Fundargerð 11. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar.
15.
Hafnarstjórn - 287
Fundargerð 286. fundar hafnarstjórnar frá 7. nóvember lögð fram til kynningar