Bæjarráð
774. fundur
28. nóvember 2022
kl.
08:30
-
10:45
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
varamaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Ragnar Sigurðsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson
bæjarstjóri
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Snorri Styrkársson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun á milli umræðna.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að gert verði ráð fyrir veikindalaunum í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar. Það gefur óljósa mynd af stefnu sveitarfélagsins í rekstri að gera ráð fyrir því að mæta kostnaði vegna veikinda starfsmanna en gera ekki ráð fyrir því í fjárhagsáætlun.

2.
Grænn orkugarður á Reyðarfirði - drög að lóðaleigusamningi - Trúnaðarmál
Framlögð sem trúnaðarmál íslensk þýðing á drögum að lóðaleigusamningu við CIP.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að lóðaleigusamningi og felur bæjarstjóra frekari vinnslu hans og undirritun. Samningi vísað til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarráð áformar að halda kynningarfund fyrir undirritun samningsins.

3.
Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2023
Fram lagt minnisblað um reynslu af tilraunaverkefni almenningssamgangna í Fjarðabyggð og tillögur um framhald þess.
Bæjarráð samþykkir að farin verði leið tvö í minnisblað þar sem gerð verði verðfyrirspurn til akstursaðila um akstur á árinu 2023. Minnisblaði er jafnframt vísað til kynningar í ungmennaráði.
Bæjarráð samþykkir að farin verði leið tvö í minnisblað þar sem gerð verði verðfyrirspurn til akstursaðila um akstur á árinu 2023. Minnisblaði er jafnframt vísað til kynningar í ungmennaráði.
4.
Fjallskilasamþykkt SSA
Vísað til bæjarráðs frá umhverfis- og skipulagsnefnd Fjallskilasamþykkt Múlasýslu til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir fjallskilasamþykktina fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
Bæjarráð samþykkir fjallskilasamþykktina fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
5.
Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2022
Lögð fram drög að umsókn um lán til Ofanflóðasjóðs vegna áfallins kostnaðar við ofanflóðaframkvæmdir á tímabilinu janúar - október árið 2022.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán hjá Ofanflóðasjóði.
Bæjarráð samþykkir að sótt verði um lán hjá Ofanflóðasjóði.
6.
Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2023
Framlagt bréf frá Brú lífeyrissjóði þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar verði óbreytt milli ára eða 74%.
Bæjarráð samþykkir tillögu fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir tillögu fyrir sitt leyti og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
7.
Upplýsingatækni - spjallmenni
Framlagt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er verkefni í upplýsingatækni og sveitarfélögum er boðið að vera hluti af þróun á því. Um er að ræða spjallmenni sem getur svarað helstu spurningum um sveitarfélagið í vefspjalli.
Bæjarráð samþykir þátttöku í verkefninu.
Bæjarráð samþykir þátttöku í verkefninu.
8.
Þórsmörk - leigusamningur
Framlagður nýr leigusamningur um afnot af Þórsmörk í Neskaupstað fyrir starfsemi Menningarstofu. Samningur tekur við af eldri samningi sem var milli Menningarstofu og Listasmiðju Norðfjarðar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
9.
Þorrablót Reyðfirðinga 2022 - beiðni um afnot af nýja íþróttahúsi
Fram lögð beiðni Þorrablóts Reyðarfjarðar um afnot af íþróttahúsinu á Reyðarfirði vegna Þorrablóts Reyðfirðinga 2023.
Bæjarráð samþykkir að veita Þorrablóti Reyðarfjarðar afnot af íþróttahúsinu og styrkir það sem nemur afnotum af húsinu. Nánari útfærsla verður unnin í samráði við Þorrablótsnefndina.
Bæjarráð samþykkir að veita Þorrablóti Reyðarfjarðar afnot af íþróttahúsinu og styrkir það sem nemur afnotum af húsinu. Nánari útfærsla verður unnin í samráði við Þorrablótsnefndina.
10.
Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2022
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr.53 og fundargerð aðalfundar 2022.
11.
Ungmennaráð 2022
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til bæjarráðs tillögu deildarstjóra tómstunda- og forvarnarmála þar sem lagt er til fulltrúum í ungmennaráði verða greidd laun fyrir setu sína í ráðinu.
Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar og jafnframt sé gerð breyting á reglum um kjör kjörinna fulltrúa og erindisbréf ungmennaráðs sem tekin verði til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar og jafnframt sé gerð breyting á reglum um kjör kjörinna fulltrúa og erindisbréf ungmennaráðs sem tekin verði til afgreiðslu.
12.
Mannvirkja- og veitunefnd - 7
Fundargerð 7. fundar Mannvirkja- og veitunefndar frá 23. nóvember lögð fram til afgreiðslu.
13.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 108
Fundargerð 108. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 21. nóvember tekin til afgreiðslu.
14.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 12
Fundargerð 12. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 23. nóvember lögð fram til afgreiðslu.