Fara í efni

Bæjarráð

778. fundur
28. desember 2022 kl. 12:00 - 13:15
í fjarfundi
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Málsnúmer 2108124
Framlagður sem trúnaðarmál endanlegur lóðaleigusamningur við CI ETF I Fjarðarorka HoldCo ehf. vegna vegna lóðar undir grænan orkugarð á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð 2023
Málsnúmer 2211145
Fram lögð niðurstaða verðfyrirspurnar í akstur almenningssamgangna í Fjarðabyggð, tilraunaverkefni á árinu 2023. Eitt tilboð barst í verkefnið frá Ís Travel Austurland ehf.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Ís Travel og felur bæjarstjóra undirritun samnings þegar niðurstöður liggja fyrir varðandi tilboð í legg 2 í útboði. Samningur lagður fyrir bæjarráð til kynningar.
3.
Útsvar 2023
Málsnúmer 2210206
Tillaga að nýju álagninarhlutfalli útsvars 2023 lögð fram. Hámarksútsvar sveitarfélaga, sem ákveðið er í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem er nú 14,52%, skal hækkað um 0,22% samhliða lækkun á tekjuskatti um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.
Bæjarráð samþykkir að útsvarshlutfall árið 2023 hækki sem nemi 0,22% og verði 14,74% sbr. ákvæði um breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 16. desember 2022 og vísar staðfestingu útsvarshlutfalls til afgreiðslu bæjarstjórnar.