Fara í efni

Bæjarráð

783. fundur
6. febrúar 2023 kl. 08:30 - 00:00
í Molanum fundarherbergi 3
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir varamaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Kristinn Þór Jónasson varamaður
Starfsmenn
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 2204062
Lagt fram sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur, launakostnað og fjárfestinga á árinu 2022.
2.
Erindi frá Austurbrú og SSA um þátttöku í nýju verkefni
Málsnúmer 2301163
Framlagður til kynningar stofnsamningur um nýsköpuanar verkefnið Eygló. Fjarðabyggð er aðili að samningnum ásamt öðrum sveitarfélögum á Austurlandi, Austurbrú, SSA, Landsvirkjun og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu. Bæjarráð hafði áður samþykkt þátttöku í verkefninu.
3.
Tjaldsvæði 2022
Málsnúmer 2203199
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra vegna funda með rekstraraðila hluta tjaldsvæða Fjarðabyggðar, Landamerki og Fjallmann Solutions. Bæjarstjóra ásamt atvinnu-og þróunarstjóra falið að gera viðauka við gildandi samning þar sem gildistími verður færður fram til hausts 2023.
4.
Boðun XXXVIII. landsþings sambandsins 31. mars 2023
Málsnúmer 2301210
Framlagt boð á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem halda á 31. mars nk.
5.
Breyting á leigusamningi um Hafnargötu 2
Málsnúmer 2301033
Lögð fram drög að breytingu á leigusamningi Fjarðabyggðar vegna Hafnargötu 2 á Reyðarfirði fyrir bæjarskrifstofur. Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á leigusamningnum og felur bæjarstjóra að vinna áfram að honum og undirritun hans í framhaldi af því.
6.
Mannvirkja- og veitunefnd - 10
Málsnúmer 2301022F
Fundargerð 10. fundar mannvirkja- og veitunefndar lögð fram til afgreiðslu