Fara í efni

Bæjarráð

820. fundur
30. október 2023 kl. 08:30 - 12:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Málsnúmer 2305073
Vísað frá hafnarstjórn til bæjarstjórnar starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðarhafna, ásamt fjárfestingaráætlun fyrir 2024.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstunda 2024
Málsnúmer 2305047
Framlögð drög að starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar.
Bæjarráð hefur samþykkt forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2024 og styðst við þær við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu. Bæjarráð vísar til nefndar að ljúka framsetningu fjárhagsáætlunar fyrir málaflokkinn milli
umræðna.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.

3.
Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024
Málsnúmer 2305070
Framlögð drög að starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar.
Bæjarráð hefur samþykkt forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2024 og styðst við þær við framlagningu fjárhagsáætlunar 2024 til fyrri umræðu. Bæjarráð vísar til nefndar að ljúka framsetningu fjárhagsáætlunar fyrir málaflokkinn milli
umræðna.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
4.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Málsnúmer 2305061
Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2024 auk 3ja ára áætlunar fyrir árin 2025 - 2027.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög fjárhagsáætlunar og vísar henni til fyrri umræðu bæjarstjórnar með þeirri breytingu að bætt verði 15 m.kr. við fjárfestingaáætlun 2024 vegna framkvæmda við Grunnskóla Reyðarfjarðar. Á móti lækkar framlag til framkvæmda við skólann um 15 m.kr. á árinu 2025.
5.
Bráðaviðgerðir ofanflóðamannvirkja í Neskaupstað
Málsnúmer 2310177
Framlagt erindi sem sent var Ofanflóðasjóði vegna bráðaviðgerða sem nauðsynlegar eru á ofanflóðamannvirkjum í Neskaupstað, auk svars sjóðsins við erindinu.
6.
Erindi íbúasamtaka Stöðvarfjarðar vegna tjaldsvæðis
Málsnúmer 2310178
Framlagt erindi íbúasamtaka Stöðvarfjarðar vegna áforma um útvistun reksturs tjaldsvæðisins á Stöðvarfirði og er hvatt til að áformin séu endurskoðuð.
Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarfulltrúa að óska eftir afstöðu íbúa við Réttarholt 1 á Stöðvarfirði til hugmynda sem koma fram í erindinu.
7.
Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda
Málsnúmer 2310047
Framlagt að nýju erindi Helgu Rakelar Arnardóttur f.h. Víkin fagra ehf. vegna fasteignagjalda ásamt minnisblaði um styrkveitingu til starfseminnar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk samkvæmt reglum Fjarðabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts í hlutfalli af starfsemi sem fellur þar undir.
8.
Landamerkjamál Stuðla
Málsnúmer 2309243
Tekin umræða um stefnu landeiganda Stuðla vegna landamerkja í botni Reyðarfjarðar.
Bæjarráð staðfestir að gagnstefnt verði í málinu og óskað verði eftir mati jarðfræðings á legu árinnar.
9.
Yfirlýsing vegna kaupréttar
Málsnúmer 2209031
Umræða um nýtingu kaupréttar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir að falla frá nýtingu kaupréttar að eigninni. Lögmanni sveitarfélagsins í málinu falið að tilkynna eiganda eignarinnar um niðurstöðuna.
10.
Erindi Bj.sv.í Fjarðabyggð varðandi björgunarhunda
Málsnúmer 2310168
Framlegt erindi frá björgunarsveitum í Fjarðabyggð varðandi gjaldtöku af björgunarhundum.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk á móti leyfisgjaldi fyrir árið 2023 og vísar til þess að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald fyrir árið 2024 tekur tilliti til þess að björgunarhundar séu undanþegnir leyfisgjöldum.
11.
Starfshópur vegna ofanflóðavarna og skipulagsmála
Málsnúmer 2310083
Framlögð drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið.
12.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Málsnúmer 2306063
Framlagt bréf landeiganda Óseyrar vegna smölunar.
Bæjarráð vísar erindi til fjallskilanefndar.
13.
Reglur og samkomulag um íþróttahús og líkamsrækt án viðveru starfsmanns.
Málsnúmer 2310108
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umföllunar í bæjarráði drögum að reglum og samkomulagi um íþróttahús og líkamsrækt án viðveru starfsmanna utan hefðbundins opnunartíma.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
14.
Fjöldatakmörkun smærri sundlauga Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2310109
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar í bæjarráði tillögu að fjöldatakmörkunum í smærri sundlaugar Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir tillögu að fjöldatakmörkunum í sundlaugum í Breiðdal, Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði samanber framlagt minnisblað.
15.
Gjaldskrá sundlauga 2024
Málsnúmer 2309165
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá sundlauga 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
16.
Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik
Málsnúmer 2309170
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu í bæjarráði tillögu að gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðabliki fyrir árið 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
Viðhengi
Minnisblað
17.
Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla
Málsnúmer 2309157
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir húsnæði grunnskóla 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
Viðhengi
Minnisblað
18.
Gjaldskrá stuðningsþjónustu 2024
Málsnúmer 2309168
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir stuðningsþjónustu 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
Viðhengi
Minnisblað
19.
Gjaldskrá félagsmiðstöðva 2024
Málsnúmer 2309059
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsmiðstöðva 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.

20.
Gjaldskrá skíðasvæðis 2024
Málsnúmer 2309169
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá skíðasvæðis 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
21.
Gjaldskrá íþróttahúsa 2024
Málsnúmer 2309158
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá íþróttahúsa 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
22.
Gjaldskrá bókasafna 2024
Málsnúmer 2309057
Stjórnin menningarstofu og safnastofnunar vísar til bæjarráðs tillögu að gjaldskrá bókasafna 2024. Lagt er til að fellt verði út gjald fyrir afnot af bókum fyrir almenning og ákvæði um gjaldfrjáls afnot gegn framvísun Fjarðabyggðarkorts. Aðrir liðir gjaldskrár hækka um 5,8%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
23.
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2024
Málsnúmer 2309151
Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
24.
Gjaldskrá fráveitu 2024
Málsnúmer 2309152
Vísað frá mannvirkjar- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fráveitu 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
25.
Gjaldskrá vatnsveitu 2024
Málsnúmer 2309167
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá vatnsveitu 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
26.
Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024
Málsnúmer 2309161
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
27.
Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024
Málsnúmer 2309156
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald 2024 en gjaldskrá tekur ekki hækkunum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
28.
Gjaldskrá íþróttahúsa - stórviðburðir 2024
Málsnúmer 2309159
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá íþróttahús 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024. Bæjarráð samþykkir jafnframt að felldur verði út texti gjaldskrár "Þá er leiga einnig háð því að íþróttahúsin séu ekki upptekin á umræddum tíma og að bæjarráð Fjarðabyggðar samþykki útleiguna."
29.
Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024
Málsnúmer 2309099
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fjarvarmaveitna 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
30.
Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 2024
Málsnúmer 2309172
Tillaga að gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
31.
Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2025
Málsnúmer 2309204
Vísað frá stjórn menningarstofu og safnastofnunar til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að uppfærðri gjaldskrá fyrir árið 2025. Stjórn tók að nýju upp gjaldskrá minjasafna í Fjarðabyggð og gerir minniháttar breytingar á henni.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2025. Jafnframt verði afsláttarákvæðum í gjaldskrá ársins 2024 samanber minnisblað.
32.
Gjaldskrá félagsheimila 2024
Málsnúmer 2309058
Vísað frá stjórn menningarstofu og safnastofnunar til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá félagsheimila 2024. Gjaldskrá er uppfærð eftir samráð við Slysavarnardeildina Hafdísi um samræmingu gjaldskrár Skrúðs við önnur félagsheimili. Stjórnin samþykkir gjaldskrána með 5,8% hækkun á gjaldskrárliðum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1.1.2024.
33.
Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Málsnúmer 2301183
Fundargerð 935. fundar stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
34.
Félagsmálanefnd - 171
Málsnúmer 2310026F
Fundagerð félagsmálanefndar frá 25. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
35.
Hafnarstjórn - 303
Málsnúmer 2310024F
Fundargerð hafnarstjórnar frá 26. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
36.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 126
Málsnúmer 2310018F
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 23. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
37.
Öldungaráð - 10
Málsnúmer 2310023F
Fundargerð öldungaráðs frá 23. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.