Fara í efni

Bæjarráð

826. fundur
11. desember 2023 kl. 08:30 - 11:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Jón Björn Hákonarson varamaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar - breytingar 2022 og 2023
Málsnúmer 2205294
Framlögð tillaga Framsóknarflokks og Fjarðalista að breytingum á 62. gr. samþykktar auk viðauka um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar nr. 252/2022 með síðari breytingum. Bæjarráð samþykkir breytinguna og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.
2.
Erindisbréf fjölskyldunefndar
Málsnúmer 2312054
Framlögð drög að nýju erindisbréfi fjölskyldunefndar með vísan til tillögu að breytingum á nefndum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir breytingu á erindsbréfinu og vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.
3.
Erindisbréf skipulags- og framkvæmdanefndar
Málsnúmer 2312053
Framlögð drög að nýju erindisbréfi skipulags- og framkvæmdanefndar með vísan til tillögu að breytingum á nefndum sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir breytingu á erindsbréfinu og vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ragnar Sigurðsson, situr hjá við afgreiðsluna.
4.
Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2023
Málsnúmer 2311139
Lántaka hjá Ofanflóðasjóði. Gert er ráð fyrir samþykki fyrir lántökunni hjá Ofanflóðasjóði berist í vikunni. Fyrir liggur minnisblað fjármálastjóra varðandi lántökuna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti lántökuna og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
5.
Málefni fjölskyldusviðs
Málsnúmer 2303095
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðu mála á sviðinu.

Starfshópi um rekstur íþróttamannvirkja er veittur frestur til 25. janúar 2024 til að skila niðurstöðum.
6.
Starfshópur fræðslumála 2023
Málsnúmer 2309181
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, fræðslustjóri og formaður starfshóps um fræðslumál koma á fundinn og fara yfir stöðu mála við vinnu starfshóps um fræðslumál.

Starfshópurinn hefur tekið saman talsvert magn af upplýsingum og sett upp drög af sviðsmyndum. Bæjarráð þakkar fyrir vinnuna sem unnin hefur verið. Nú hefst vinna við stefnumótun á grundvelli þessara gagna og verður uppfært erindsbréfi hópsins lagt fyrir á næsta fundi bæjarráðs, ásamt tilnefningum í hann að nýju. Í framhaldi af vinnu þess hóps verður farið í samráð.
7.
Málefni framkvæmda- og umhverfissviðs 2023
Málsnúmer 2312049
Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs mætir á fundinn og fer yfir stöðu mála á sviðinu.

Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.
8.
Úthlutun byggðakvóta 2023 og 2024
Málsnúmer 2312006
Lögð til úthlutun á byggðkvóta til Fjarðabyggðar fyrir fiskveiðiárið 2023 og 2024. Á síðasta fiskveiðiári voru engar sérreglur í gildi varðandi úthlutun byggðakvóta. Bæjarráð samþykkir að ekki verði óskað eftir sérreglum varðandi úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2023 - 2024.
9.
Íbúafundir í janúar 2024
Málsnúmer 2312011
Umræða um íbúafundi í janúar 2024 og undirbúning þeirra.

Gert er ráð fyrir að fundirnir verði allir haldnir í húsnæði grunnskólanna á hverjum stað og hefjist þeir allir kl. 20:00.

Dagsetningar verða sem hér segir:

Breiðdalsvík - 15. janúar
Stöðvarfjörður - 16. janúar
Reyðarfjörður - 17. janúar
Eskifjörður - 18. janúar
Norðfjörður - 22. janúar
Fáskrúðsfjörður - 23. janúar

Fundur verður haldinn í Mjóafirði í samráði við íbúa.

10.
Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023
Málsnúmer 2312063
Á fundi stjórnar Náttúrustofu Austurlands þann 7. desember slsl. var athygli vakin á því að samningur Fjarðabyggðar og Múlaþings við umhverfisráðuneytið varðandi rekstur Náttúrustofunar rennur út um áramót. Bæjarstjóra falið að ræða við hlutaðeigandi vegna samningagerðar.
11.
Erindi vegna gjaldfrjálsra afnota af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði
Málsnúmer 2312050
Framlagt erindi Kimi Tayler um gjaldfrjáls afnot af eldhúsi grunnskólans á Stöðvarfirði. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að skoða erindið með hlutaðeigandi aðilum á grundvelli verkefnisins Brothættar byggðir
12.
Aðgerðerðaáætlun í kjölfar haustþings SSA
Málsnúmer 2312047
Framlagt til kynngar bréf frá stjórn SSA vegna aðgerðaráætlunar sem unnin var upp úr ályktunum haustþings SSA 2023. Bæjarstjóra falið fara yfir verkefnin og vísa þeim til umfjöllunar í viðeigandi nefndum sveitarfélagsins.
13.
Frumvarp til laga um lagareldi
Málsnúmer 2312045
Matvælaráðuneytið hefur með töluvpósti kynnt til samráðs mál nr. 253/2023 - „Frumvarp til laga um lagareldi“. Umsagnarfrestur er til og með 03.01.2024. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
14.
Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
Málsnúmer 2312056
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að tillögu til þingsályktunar um sjávarútvegsstefnu, drög að frumvarpi til laga um sjávarútveg og tillögur um útfærslu á innviðaleið. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.
15.
Samningur við Orkusöluna fyrir skerðanlegt rafmagn
Málsnúmer 2312061
Framlögð drög að samningi við Orkusöluna fyrir skerðanlegt rafmagn til húshitunar. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
16.
Starfshópur um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna
Málsnúmer 2311229
Fundargerðir starfshóps um skipulagsmál vegna ofanflóðavarna nr. 1 og nr.2 lagðar fram til kynningar.
17.
Erindi frá forstöðumönnum bókasafna í Fjarðabyggð - desember 2023
Málsnúmer 2312020
Framlagt til kynningar erindi frá forstöðumönnum bókasafnanna í Fjarðabyggð frá 1. desember 2023.
18.
Jafnlaunastefna endurskoðun
Málsnúmer 2102122
Framlögð drög að endurskoðaðri jafnlaunastefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði. Bæjarráð samþykkir drögin og vísar jafnlaunastefnunni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
19.
Umsókn um lóð Bakkagerði 11
Málsnúmer 2311147
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar um lóðina að Bakkagerði 11 á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt að úthluta lóðina og vísar úthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
20.
Umsókn um lóð Strandgata 12 Nesk
Málsnúmer 2311181
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd lóðaumsókn Heimis Snæs Gylfasonar vegna lóðarinnar að Strandgötu 12 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt að úthluta lóðinni og vísar úthlutuninni til staðfestingar bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
21.
Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Málsnúmer 2301183
Fundargerð 939. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
22.
Jólasjóður 2023
Málsnúmer 2312057
Minnisblað lagt fram frá stjórnanda félagsþjónustu með tillögu að greiðslu styrks í jólasjóð Fjarðabyggðar vegna úthlutunar úr sjóðnum í desember 2023. Bæjarráð samþykkir styrk í jólasjóðinn að upphæð 500.000 kr.
23.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 2311024F
Fundargerð 40. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar.
24.
Hafnarstjórn - 305
Málsnúmer 2312002F
Fundargerð 305. fundar hafnarstjórnar lögð fram til staðfestingar
25.
Fjallskilanefnd - 5
Málsnúmer 2311005F
Fundargerð 5. fundar fjallskilanefndar lögð fram til staðfestingar