Bæjarráð
827. fundur
18. desember 2023
kl.
08:30
-
10:15
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson
formaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
varaformaður
Ragnar Sigurðsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson
forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Útsvar 2024
Framlögð tillaga að breytingu á áður samþykktri Útsvarsprósentu Fjarðabyggðar. Með hliðsjón af samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 15. desember 2023 um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu við fatlað fólk samþykkir bæjarráð að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23%, verði 14,97% og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
2.
Útboð almenningssamgangna í Fjarðabyggð 2024-2027
Útboði vegna almenningssamganga í Fjarðabyggð er lokið. Eitt tilboð barst í verkið. Fjármálastjóra og forstöðumanni stjórnsýslu og upplýsingamála er falið að ræða við tilboðsgjafa.
3.
Starfshópur fræðslumála 2023
Framlögð tillaga að uppfærðu erindisbréfi starfshóps um fræðslumál. Bæjarráð samþykkir erindisbréfið. Skipað verður í starfshópinn á næsta fundi bæjarráðs.
4.
Aðafundur Héraðsskjalasafns Austurlands 2023
Framlagt boð á aðalfund Héraðsskjalasafns Austurlands 2023 sem fram fer föstudaginn 22. desember nk. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
5.
Forvarnateymi Fjarðabyggðar 2023-2024
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd, félagsmálanefnd og fræðslunefnd minnisblaði varðandi nýjar starfsreglur forvarnarteymis ásamt áherslum teymisins. Framlagt og kynnt.
6.
Reglur um stuðningsþjónustu - uppfærsla 2023
Vísað frá félagsmálanefnd til staðfestinga í bæjarráði tillögu að uppfærðum reglum um stuðningsþjónustu í Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir breytingar á reglunum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
7.
Gjaldskrá leikskóla 2024
Framlagt minnisblað fræðslustjóra varðandi breytingu á gildistöku gjaldskrár fyrir leikskóla 2024. Bæjarráð samþykkir breytingu á gildistöku gjaldskrár fyrir leikskóla og mun ný gjaldskrá taka gildi 1. febrúar 2024.
8.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2023
Framlagður samningur við fiskeldissjóð vegna styrks í framkvæmdir við Eskifjarðarhöfn. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
9.
Sjávarútvegsstefna og frumvarp til laga um sjávarútveg
Framlögð drög atvinnu- og þróunarstjóra að umsögn vegna sjávarútvegsstefnu og frumvarpi til laga um sjávarútveg. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna áfram að umsögninni að halda áfram að vinnu við umsögnina og leggja hana endanlega fyrir næsta fund bæjarráðs.
10.
Frumvarp til laga um lagareldi
Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir þessum lið. Framlögð drög atvinnu- og þróunarstjóra að umsögn vegna frumvarps til laga um lagareldi. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að vinna áfram að umsögninni og leggja hana endanlega fyrir næsta fund bæjarráðs.
11.
Ísland ljóstengt 2022 ljósleiðaralagning Fáskrúðsfjörður - norður
Framlögð drög að samkomulagi við Mílu um uppgjör vegna ljósleiðarverkefnis á norðurströnd Fáskrúðsfjarðar. Bæjarráð samþykkir drögin og felur bæjarstjóra undirritun samkomulagsins.
12.
Erindi frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar - desmber 2023
Framlagt og kynnt erindi frá íbúasamtökunum á Stöðvarfirði. Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Vinna við sölu á rekstri tjaldsvæðanna er í gangi og verða hugmyndir íbúasamtakanna hafðar með í þeirri vinnu.
13.
3.Stjórnarfundur Náttúrustofu Austurlands
Fundargerð 3. fundar stjórnar náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.
14.
Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands 2023
Endurnýjun á samningi um Náttúrustofu Austurlands. Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið hefur lagt til að núverandi samningur verði framlengdur um eitt ár og verður samkomulag þess efnis sent út milli jóla og nýjárs. Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn og felur bæjarstjóra undirritun samkomulags þar um. Bæjarráð ítrekar þó að mikilvægt sé að tryggja rekstrargrundvöll Náttúrustofunnar til lengri tíma.
15.
Auka aðalfundur Leigufélagsins Bríetar 2023
Boðað hefur verið til aukaaðalfundar leigfélagsins Bríetar mánudaginn 18. desember kl. 15:00. Bæjarstjóra falið að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
16.
Fræðslunefnd - 134
Fundargerð 134. fundar fræðslunefndar frá 12. desember lög fram til staðfestingar
17.
Félagsmálanefnd - 174
Fundargerð 174. fundar félagsmálanefndar frá 13. desember lögð fram til staðfestingar.
18.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 128
Fundargerð 128. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til staðfestingar