Fara í efni

Bæjarráð

835. fundur
26. febrúar 2024 kl. 08:30 - 11:00
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Stefán Þór Eysteinsson formaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir varamaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Snorri Styrkársson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Samstarfssamningur um byggingu búsetukjarna Reyðarfirði
Málsnúmer 2402218
Tekið fyrir að nýju til umfjöllunar bygging íbúðarkjarna fatlaðs fólks. Framlögð drög að samstarfssamningi við R101 ehf. um áform um að byggja íbúðakjarna auk skammtímavistunar fyrir fatlað fólk á Reyðarfirði.
Framlagt og kynnt.
2.
Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Málsnúmer 2302095
Lagðar fram niðurstöður HMS vegna umsóknar um stofnframlög til íbúðabyggingar fyrir tekju- og eignalága einstaklinga og fjölskyldur í Fjarðabyggð. Lagt er til að staðfesta framsal úthlutunarinnar til Brákar íbúðafélags hses.
Framlagt til kynningar.
3.
Framlag til rekstrar Stefánslaugar
Málsnúmer 2402177
Framlagt erindi frá Vélaverkstæði G. Skúlasonar um framlag til Stefánslaugar til að halda sundlauginni í óbreyttum rekstri þrátt fyrir skerðingar.
Bæjarráð þakkar gott boð fyrirtækisins og felur deildarstjóra íþróttamannvirkja og íþróttamála ásamt sviðsstjóra að ræða við forsvarsmenn fyrirtækisins.
4.
Kauptilboð JD70 ehf í Urðarteig 37 Neskaupstað
Málsnúmer 2402219
Framlagt kauptilboð í Urðarteig 37 í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir að taka kaupatilboði og felur bæjarstjóra að undirrita skjöl vegna sölu eignarinnar.
5.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Málsnúmer 2306063
Framlagt erindi Ívars Ingimarsson dags. 19. febrúar 2024 til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar þar sem óskað er eftir upplýsingum um kostnað sveitarfélagsins við gerð lögfærðiálits.
Fram lagt og kynnt, bæjarritara falið að upplýsa um kostnað vegna álitsgerðarinnar.
6.
Umsókn um frí afnot íþróttahúss Reyðafjarðar vegna ársthátíðar starfsmanna Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2402213
Framlagt erindi árshátíðarnefndar starfsmannafélags Fjarðabyggðar óskar eftir afnotum af íþróttahúsi Reyðarfjarðar endurgjaldslaust vegna árshátíðar starfsmanna Fjarðabyggðar sem fer fram þann 16. mars 2024.
Bæjarráð samþykkir að styrkja starfsmannafélagið um leigu íþróttahússins. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.
7.
Drög að borgarstefnu í samráðsgátt
Málsnúmer 2402217
Framlögð til kynningar drög að borgarstefnu sem liggja frami í samráðsgátt stjórnvalda.

8.
Umsókn um lóð Hlíðargata 7-9, Fásk
Málsnúmer 2312003
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Hlíðargötu 7 - 9 á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
9.
Umsókn um lóð Móbakki 16
Málsnúmer 2402052
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina að Móbakka 16 í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
10.
Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 2401142
Fundargerð 934. fundar stjórnar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
11.
Hafnarstjórn - 308
Málsnúmer 2402016F
Fundargerð 308. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
12.
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 3
Málsnúmer 2402014F
Fundargerð 3. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
13.
Starfshópur fræðslumála 2023
Málsnúmer 2309181
Farið yfir niðurstöður starfshóps sem lagðar eru fram sem trúnaðarmál.
Bæjarráð vísar tillögum til stjórnkerfisnefndar.