Fara í efni

Bæjarráð

862. fundur
9. september 2024 kl. 08:30 - 10:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson formaður
Jón Björn Hákonarson varaformaður
Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025
Málsnúmer 2404224
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma málaflokka og deilda sem falla undir ráðið fyrir árið 2025.
Bæjarráð felur stjórnendum málaflokka að vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlunar og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
2.
Áhrif kjarasamninga 2024
Málsnúmer 2409041
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótamála varðandi áhrif kjarasamninga sem tóku gildi frá 1. apríl 2024.
Bæjarráð vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024.
3.
Veikindalaun 2024
Málsnúmer 2408127
Framlagt til kynningar minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna veikindalauna fyrstu sex mánuði 2024.
4.
Vinnustaðagreining 2024
Málsnúmer 2409042
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótamála varðandi samstarf við Gallup við gerð vinnustaðagreiningu 2024, auk draga að samstarfssamningi við Gallup vegna verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir samning um vinnustaðagreiningu og felur bæjarstjóra undirritun samningsins.
5.
Kvörtun vegna úrskurðar dómsmálaráðuneytis
Málsnúmer 2409006
Framlagt bréf Umboðsmanns Alþingis vegna úrskurðar dómsmálaráðuneytisins um ákvörðun lögreglustjórans á Austurlandi um að synja beiðni landeiganda að Óseyri í Stöðvarfirði um smölun lands.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi umboðsmanns.
6.
Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Málsnúmer 2306063
Lagt fram svar frá fjáreiganda að Þverhamri vegna ábendinga um að sauðfé gangi í landi Óseyrar en í því eru lagðar fram fyrirspurnir um fjölda og hvað teljist til ágangs. Ekki liggur fyrir staðfesting á eignarhaldi á sauðfénu.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að fara yfir málið að nýju og leggja það fyrir bæjarráð.
7.
Ágangsfé í landi Áreyja
Málsnúmer 2407007
Framlagðir tölvupóstar landeiganda Áreyja vegna ágangs sauðfjár ásamt myndum síðustu daga og samskiptum við fjáreiganda.
Bæjarráð skorar á fjáreigendur sem líkindi er til að eigi sauðfé í landi Áreyja að smala því og veitir hlutaðeignadi andmælafrest.
8.
Byggðakvóti Stöðvarfirði
Málsnúmer 2409033
Framlögð beiðni Goðaborgar ehf. þar sem óskað eftir staðfestingu Fjarðabyggðar á að Elli P 2673 sem er bátur í eigu Gullrúnar ehf. sé samreiknaður með Silfurborg 1575.
Bæjarráð felur bæjarritara að staðfesta gögn vegna málsins.
9.
Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
Málsnúmer 2303098
Fjallað um stöðu mála við uppfærslu heimasíðu Fjarðabyggðar og næstu skref til undirbúnings efnis og framsetningu hennar.
Bæjarráð samþykkir tillögur að endurgerð síðunnar og felur bæjarstjóra að undirrita samning við þjónustuaðila.
10.
Málefni Sköpunarmiðstöðvar
Málsnúmer 2404200
Vísað frá stjórn menningarstofu til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um að Fjarðabyggð skipi fulltrúa í stjórn Sköpunarmiðstöðvarinnar og það verði bundið við stjórnarsetu menningarstofu. Tilnefnd eru Jón Björn Hákonarson sem aðalmaður og Guðbjörg Sandra Óðinsdóttur Hjelm sem varamaður. Jafnframt leggur stjórn til að miðstöðin verði skilgreind sem fjórða menningarmiðstöðin á Austurlandi með það hlutverk að vera miðstöð skapandi lista á Austurlandi.
Bæjarráð samþykkir tillögur stjórnarinnar og beinir til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að leitað verði samninga við hlutaðeigandi ráðuneyti um að samningur verði gerður við Sköpunarmiðstöðina um viðaukasamning um starfsemi sína sem hluta af menningarsamningi sveitarfélaganna á Austurlandi.
11.
Auglýsing starfs slökkvliðsstjóra
Málsnúmer 2409063
Framlögð drög að auglýsingu vegna starfs slökkvliðsstjóra Fjarðabyggðar, ásamt minnisblaði sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs varðandi málið.
Bæjarráð samþykkir að starfið verði auglýst.
12.
Tilboð um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara
Málsnúmer 2407009
Farið yfir niðurstöður viðræðna við Austurljós og Mílu um lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að samið verði við Mílu um tengingu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar og felur bæjarritara að ganga frá samningum við fyrirtækið.
13.
Haustþing SSA 2024
Málsnúmer 2409036
Haustþing Sambands sveitarfélaga á Austurlandi verður haldið á Hallormsstað 26. og 27. september nk. Farið yfir málefni fundarins.
14.
Uppsetning á póstboxi á Stöðvarfirði
Málsnúmer 2404082
Framlögð drög að samningi milli Fjarðabyggðar og Íslandspósts um leigu aðstöðu fyrir póstbox á Stöðvarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
15.
Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Málsnúmer 2403087
Framlögð til kynningar fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga nr. 74.
16.
Hafnarstjórn - 315
Málsnúmer 2408017F
Framlög til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 2. september.
17.
Stjórn menningarstofu - 7
Málsnúmer 2409003F
Framlögð til umfjöllunar og afgreiðslu fundargerð stjórnar menningarstofu frá 5. september.