Bæjarstjórn
213. fundur
15. desember 2016
kl.
16:00
-
18:15
Safnahúsið í Neskaupstað
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson
Forseti bæjarstjórnar
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir
Aðalmaður
Elvar Jónsson
Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir
Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson
Aðalmaður
Dýrunn Pála Skaftadóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson
Embættismaður
Páll Björgvin Guðmundsson
Bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 500
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 5.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

2.
Bæjarráð - 501
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 12.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

3.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 162
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5.desember staðfest með 9 atkvæðum.

4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 163
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 12.desember samþykkt með 9 atkvæðum.

5.
Hafnarstjórn - 170
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 5.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

6.
Fræðslunefnd - 34
Til máls tóku: Dýrunn Pála Skaftadóttir, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð fræðslunefndar frá 30.nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

7.
Menningar- og safnanefnd - 28
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

8.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 30
Enginn tók til máls.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 8.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

9.
Félagsmálanefnd - 90
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

10.
Fundargerðir barnaverndarnefndar 2016
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 69 frá 7.desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

11.
Fiðurfé - drög að samþykkt
Forseti bæjarstjórnar fylgdi samþykktinni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd vísar til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að samþykkt um fiðurfé utan skipulagðra landbúnaðarsvæða.
Samþykktin er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn vísar samþykkt til seinni umræðu í bæjarstjórn.

12.
740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting - stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirð
Forseti bæjarstjórnar fylgdi aðalskipulagsbreytingunni úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls.
Að teknu tilliti til athugasemda ábúenda og þeirra sjónarmiða um aðalskipulagsbreytinga þá telur bæjarstjórn að ekki sé gengið lengra í breytingu aðalskipulags en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, stækkun reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 19. ágúst 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.

13.
740 - Deiliskipulag Kirkjuból, hesthúsa og búfjársvæði
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Ein athugasemd barst frá ábúendum Kirkjubóls.
Að teknu tilliti til athugasemda ábúenda og þeirra sjónarmiða um deiliskipulagið þá telur bæjarstjórn að ekki sé gengið lengra en þörf er á til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag Kirkjubóls, hesthúsa og búfjársvæði, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 19. ágúst 2016. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

14.
755 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 breyting, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, reitur I1
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulagslýsingu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Lögð fram skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi, þéttbýlisuppdráttur fyrir Stöðvarfjörð, dagsettur 2. desember 2016.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum skipulagslýsingu.

15.
735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar deiliskipulagi Hlíðarenda, skipulagsuppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 2. september 2016, sem breytt er 2. desember 2016, með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti og í umsögn skipulagsfulltrúa dagsett 29. nóvember 2016 til staðfestingar bæjarstjórnar. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur jafnframt samþykkt að unnin verði umferðaröryggisáætlun fyrir skilgreint safnasvæði.
Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag Hlíðarenda á Eskifirði með 9 atkvæðum.

16.
735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Hafnarstjórn vísar til bæjarstjórnar hafin sé vinnu við þær breytingar sem gera þarf á aðal- og deiliskipulagi hafnarsvæði á Leirum á Eskifirði. Breytingar gera ráð fyrir 90 metra kanti austast á fyllingunni með stækkunarmöguleika til vesturs um aðra 90 metra.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fela eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að hefja vinnu við þær breytingar sem þarf að gera á aðal- og deiliskipulagi svæðisins.

17.
Reglur um upplýsingatæknimál
Bæjarstjóri fylgdi reglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Vísað er til staðfestingar bæjarstjórnar drögum að reglum sem fjalla um aðgang þjónustuaðila að upplýsingatæknikerfum, stjórnun hans og eftirlits.
Bæjarstjórn samþykktar reglur með 9 atkvæðum.

18.
Reglur um fjárhagsaðstoð
Bæjarstjóri fylgdi breytingum á reglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Félagsmálanefnd vísar breytingu sem gerð er á 22. grein reglna um fjárhagsaðstoð til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.

19.
Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Bæjarstjóri fylgdi reglum úr hlaði.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Félagsmálanefnd vísar drögum að reglum um sérstakan húsnæðisstuðning til staðfestingar bæjarstjórnar. Framlögð fjárhagsleg greining fjármálastjóra ásamt minniháttar breytingar á reglunum.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um sérstakan húsnæðisstuðning.

20.
Öldungaráð
Forseti bæjarstjórnar fylgdi samþykktinni úr hlaði.
Til máls tóku: Einar Már Sigurðarson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.
Félagsmálanefnd vísar drögum að samþykkt um öldungaráð til staðfestingar bæjarstjórnar sem er framlögð með minniháttar breytingum bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum samþykkt um öldungaráð.

21.
Umsögn vegna frumvarps til laga um skipulag haf- og strandsvæða
Forseti bæjarstjórnar fylgdi umsögn bæjarstjórnar úr hlaði.
Umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um skipulag haf- og strandsvæða. Frestur til þess að skila inn umsögn var 9. desember sl., en Fjarðabyggð fékk viðbótarfrest til 15. desember.
Skipulagslög nr. 123/2010 taka eingöngu til skipulagsáætlana innan lögsagnarumdæma sveitarfélaga, sem afmarkast af ytri mörkum netlaga. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar tekur undir þau sjónarmið, að brýnt sé að skipulagsskylda haf- og strandsvæða utan netlaga verði einnig bundin í lög, ekki hvað síst með hliðsjón af vaxandi umsvifum á strandsvæðum, s.s. vegna fiskeldis og efnistöku.
Jafnframt undirstrikar bæjarstjórn mikilvægi þess að skipulagslöggjöf gangi ekki á hefðbundið forræði sveitarfélaga í skipulagsmálum. Skipulagsmál eru eitt mikilvægasta stjórntæki hverjar sveitarstjórnar. Aðalskipulag endurspeglar í samspili við deiliskipulag, vilja samfélagsins og framtíðarsýn gagnvart landnotkun og framtíðarþróun. Forræði sveitarfélaga tryggir jafnframt að stjórnvaldsfyrirmæli skipulagsáætlana byggi á lýðræðislegum grunni sveitarstjórna.
Strandsvæði eru ásamt innfjörðum og flóum, hluti af skipulagsáætlunum sveitarfélaga með bæði beinum og óbeinum hætti. Séu þessi svæði slitin úr samhengi við skipulagsáætlanir sveitarfélaga, gæti það haft í för með sér vandmeðfarið óhagræði og árekstra ólíkra hagsmuna, með þeim afleiðingum að þau grundvallarmarkmið skipulagslöggjöfar verða fyrir borð borin, sem stuðla að nýtingu og verndun auðlinda á sjálfbærum grunni í þágu efnahagslegrar uppbyggingar og félagslegrar velferðar.
Á meðal annarra alvarlegra annmarka má nefna að strandsvæðaskipulag afmarkast 30m landmegin við meðalstórstraumsflóð, sem þýðir að skipulagsáætlanir haf- og strandsvæða myndu skarast við aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaga. Þá er ráðherraskipuðum svæðisráðum falin ábyrgð á skipulagsgerðinni og ber þeim einungis að taka tillit til skipulagsáætlana þeirra sveitarfélaga sem eiga í hlut.
Þá hlýtur að orka tvímælis, að í stað þess að byggja á núverandi lagagrunni skipulagsmála, mæla drögin fyrir nýju fyrirkomulagi, sem svo er ætlað að starfa samhliða því sem fyrir er. Standi vilji ríkisvaldsins til þess að efla skipulagsgerð, væri mun nærtækara, að fella skipulag haf- og strandsvæða að núverandi fyrirkomulagi skipulagsmála og tryggja fjármögnun þess með skilgreindum tekjustofnum.
Síðast en ekki síst ganga tillögur frumvarpsdraganna gegn þeirri meginreglu að efla skuli staðbundið vald og ákvarðanatöku með tilliti til almannahagsmuna og skynsamrar meðferðar opinberra fjármuna. Þessi nándarregla er ein helsta ástæða þess að viðamikil verkefni á borð við grunnskólarekstur hafa verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun og sætir því furðu að nú skuli kveða við allt annan tón í skipulagsmálum, þrátt fyrir þá staðreynd að málaflokkurinn er á meðal mikilvægustu kjarnaverkefna sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar því á Umhverfis- og auðlindaráðuneyti að endurskoða umrædd frumvarpsdrög m.t.t. þess að sveitarfélög fari með skipulagsmál á haf- og strandsvæðum með sambærilegum hætti og lagt er til í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014 til 2018, lið 3.4.8:
Sambandið gætir hagsmuna sveitarfélaga við mótun lagafrumvarps um skipulag haf- og strandsvæða. Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á að skipulag strandsvæða, allt að einni sjómílu út frá grunnlínu landhelginnar, verði á forræði sveitarfélaga. Einnig verði lögð áhersla á að fram fari nauðsynlegar grunnrannsóknir á strandsvæðum þar sem álag vegna nýtingar er mikið, til að auðvelda gerð skipulags- og nýtingaráætlana.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umsögnina með 9 atkvæðum.