Fara í efni

Bæjarstjórn

299. fundur
15. október 2020 kl. 16:00 - 16:50
í fjarfundi vegna COVID19
Nefndarmenn
Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar
Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri
Pálína Margeirsdóttir aðalmaður
Sigurður Ólafsson aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Einar Már Sigurðarson aðalmaður
Heimir Snær Gylfason varamaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 681
Málsnúmer 2010001F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráð frá 5. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.
2.
Bæjarráð - 682
Málsnúmer 2010007F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 9. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.
3.
Bæjarráð - 683
Málsnúmer 2010008F
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráð frá 12. október sl. að undandskildum lið 4 staðfest með 8 atkvæðum.
4.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 271
Málsnúmer 2009025F
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 5. október sl.staðfest með 8 atkvæðum.
5.
Hafnarstjórn - 250
Málsnúmer 2010002F
Til máls tóku: Sigurður Ólafsson og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.
6.
Fræðslunefnd - 90
Málsnúmer 2010003F
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 7. október sl. staðfest með 8 atkvæðum.
7.
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 31
Málsnúmer 2009021F
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 28. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
8.
Félagsmálanefnd - 137
Málsnúmer 2009023F
Enginn tók til máls.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 29. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
9.
Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 19
Málsnúmer 2009020F
Enginn tók til máls.
Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna frá 24. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
10.
Barnaverndarfundargerðir 2020
Málsnúmer 2003129
Enginn tók til máls.
Fundargerðir barnaverndarnefndar frá 3., 10. og 24. september sl. staðfestar með 8 atkvæðum.
11.
Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Málsnúmer 2001211
Bæjarstjóri mælti fyrir tillögum að breytingum á réttindaákvæðum.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar erindi frá Brú lífeyrissjóði ásamt minnisblaði er varðar breytingar á réttindaákvæðum Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar. Um er að ræða tvær breytingar sem lagðar eru fyrir bæjarstjórn og starfsmannafélag til samþykktar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum tillögu Brúar lífeyrissjóðs um breytingarnar.
12.
Safnanefnd
Málsnúmer 1806133
Bæjarstjóri mælti fyrir breytingu á nefndum sveitarfélagsins.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar tillögu þess efnis að safnanefnd verði lögð niður og verkefni hennar sameinuðu verkefnum menningar- og nýsköpunarnefndar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum að safnanefnd verði lögð niður og verkefni hennar falin menningar- og nýsköpunarnefnd. Erindisbréf safnanefndar er fellt úr gildi. Jafnframt vísar bæjarstjórn til bæjarráðs og bæjarstjóra að endurskoða erindisbréf menningar- og nýsköpunarnefndar og samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar vegna þessarar ákvörðunar.