Fara í efni

Bæjarstjórn

358. fundur
7. september 2023 kl. 16:00 - 16:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Birgir Jónsson forseti bæjarstjórnar
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Jón Björn Hákonarson
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Arndís Bára Pétursdóttir varamaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri
Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þórður Vilberg Guðmundsson forstöðurmaður stjórnsýslu- og upplýsingamála
Dagskrá
1.
Bæjarráð - 809
Málsnúmer 2308010F
Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum
2.
Bæjarráð - 810
Málsnúmer 2308012F
Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum
3.
Bæjarráð - 811
Málsnúmer 2308020F
Fundargerðir funda bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Ragnar Sigurðsson og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir

Fundargerð bæjarráðs nr. 809., 810. og 811. eru samþykktar með 9 atkvæðum
4.
Mannvirkja- og veitunefnd - 16
Málsnúmer 2306012F
Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar nr. 16. og nr. 18 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman

Engin tók til máls.

Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar nr. 16. og nr. 18. eru samþykktar með 9 atkvæðum
5.
Mannvirkja- og veitunefnd - 18
Málsnúmer 2308018F
Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar nr. 16. og nr. 18 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman

Engin tók til máls.

Fundargerðir mannvirkja- og veitunefndar nr. 16. og nr. 18. eru samþykktar með 9 atkvæðum
6.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 33
Málsnúmer 2308011F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 er tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.

Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Ragnar Sigurðsson.

Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr.33 er samþykkt með 9 atkvæðum
7.
Hafnarstjórn - 299
Málsnúmer 2308017F
Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Engin tók til máls.

Fundargerð 299. fundar hafnarstjórnar er samþykkt með 9 atkvæðum
8.
Fræðslunefnd - 128
Málsnúmer 2308008F
Fundargreð 128. fundar fræðslunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Til máls tók: Birgir Jónsson.

Fundargerð 128. fundar fræðslunefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
9.
Félagsmálanefnd - 167
Málsnúmer 2308015F
Fundargerðir félagmálanefndar nr. 167 og 168. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Engin tók til máls.

Fundargerðir félagsmálanefndar nr. 167 og 168 eru samþykktar með 9 atkvæðum
10.
Félagsmálanefnd - 168
Málsnúmer 2309002F
Fundargerðir félagmálanefndar nr. 167 og 168. eru teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

Engin tók til máls.

Fundargerðir félagsmálanefndar nr. 167 og 168 eru samþykktar með 9 atkvæðum
11.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 122
Málsnúmer 2308016F
Fundargerð 122. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Engin tók til máls.

Fundargerð 122. fundar íþrótta- og tómstundanefndar er samþykkt með 9 atkvæðum
12.
735 Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði - breyting, minnkun skipulagssvæðis
Málsnúmer 2204036
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir breytingu á deiliskipulagi.

Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar breytingu á deiliskipulagi Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði.

Breytingin felur í sér breytingu á uppdrætti og greinargerð sem nær til svæðis austan við Norðfjarðarveg, beggja vegna Dalbrautar. Skipulagsmörkum er breytt þannig að skipulagssvæðið minnkar sem nemur nýju athafnasvæði inn í Dal á Eskifirði, ásamt því að aðliggjandi svæði verða aðlöguðu að breyttir landnotkun. Þá var Neskaupstaðarlínu 2 bætt inn á uppdrátt og texta um helgunarsvæði bætt við greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsettri 11. ágúst 2023.

Málsmeðferð er í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulagið ásamt meðfylgjandi gögnum.
13.
735 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Málsnúmer 2201189
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir afgreiðslu deiliskipulags.

Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til staðfestingar bæjarstjórnar deiliskipulaginu Dal-athafnasvæði á Eskifirði.

Um að ræða nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði innan þéttbýlismarka á Eskifirði. Afmörkun skipulagsins er innan skilgreinds svæðis fyrir athafnasvæði samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020 - 2040 sbr. deiliskipulagsuppdrátt, greinargerð og umhverfisskýrslu.

Lagt er til að deiliskipulagi við Dal-athafnasvæði á Eskifirði, uppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 23. ágúst 2023 verði staðfest.

Málsmeðferð er í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum deiliskipulagið ásamt meðfylgjandi gögnum.
14.
Öruggara Austurland
Málsnúmer 2308142
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir staðfestingu á viljayfirlýsingu um Öruggara Austurland

Vísað frá félagsmálanefnd til staðfestingar í bæjarstjórn viljayfirlýsingu um verkefnið Öruggara Austurlands.

Nokkrir aðilar á austurlandi hafa ákveðið að vinna saman gegn ofbeldi og öðrum afbrotum með sameiginlegum markmiðum og aðgerðum, sem byggðar eru á svæðisbundnum aðstæðum á Austurlandi.

Samstarfinu er einkum ætlað að ná til ofbeldis gegn börnum, ofbeldis í nánum samböndum, kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis, ofbeldis gagnvart fötluðu fólki og öðrum berskjölduðum hópum. Einnig telst hatursfull orðræða, sem hvetur til ofbeldis eða annarrar refsiverðrar háttsemi sem er lítillækkandi eða ógnandi í garð einstaklinga eða hópa fólks, til ofbeldis sem yfirlýsing þessi tekur til.

Til máls tóku Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Birgir Jónsson

Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum þáttöku í verkefninu og felur bæjarstjóra undirritun viljayfirlýsingar þar um.