Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
151. fundur
22. ágúst 2016
kl.
16:00
-
00:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson
Formaður
Ragnar Sigurðsson
Varaformaður
Svanhvít Yngvadóttir
Aðalmaður
Einar Már Sigurðarson
Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir
Aðalmaður
Valur Sveinsson
Embættismaður
Marinó Stefánsson
Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Valur Sveinsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Flúormælingar 2015 og 2016
Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls Magnús Þór Ásmundsson, Páll Freysteinsson og Ragnar Sigursson koma á fundinn og kynna niðurstöður flúormælinga í Reyðarfirði. Jafnframt var farið yfir stöðu mála starfsmannaþorpsins á Haga.
2.
Umhverfisviðurkenning 2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur umhverfisstjóra og felur honum að útfæra verkefnið og auglýsa eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna.
3.
Geymslusvæði og stöðuleyfi fyrir gáma og lausafé í Fjarðabyggð
Farið yfir stöðu mála.
4.
735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Lagður fram til kynningar tölvupóstur Bernhards Bogasonar fh. eiganda Strandgötu 97 og Sporðs hf. ,dagsettur 10 ágúst 2016, vegna hugmynda um staðsetningu Gömlu-búðar og Jensenshúss utan við Strandgötu 98b.
5.
755 - Deiliskipulag Saxa
Lögð fram endurbætt hönnun áningar- og útsýnisstaðs við Söxu dags. 16. júní 2016, unnin af Landmótun ehf. Samþykki landeiganda vegna áætlana um deiliskipulagsgerð liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd líst vel á framlögð gögn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd líst vel á framlögð gögn og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
6.
740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 19. ágúst 2016, vegna styrkveitingar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og tilboða í vinnu við gerð deiliskipulags fólkvangs Neskaupstaðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að láta vinna deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar. Nefndin samþykkir einnig að ganga að tilboði Teiknistofu AKS ehf. Jafnframt er bæjarstjóra falið að mynda faghóp sem komi að vinnu deiliskipulagsins.

7.
735 Leirubakki 2 - endurnýjun á lóðarleigusamningi
Lögð fram tillaga að lóðarblaði Leirubakka 2 á Eskifirði vegna breytinga á deiliskipulagi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður í samræmi við lóðarblað.
8.
Afgreiðslur byggingafulltrúa - 74
Samþykkt