Fara í efni

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd

175. fundur
2. maí 2017 kl. 16:00 - 18:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson Formaður
Svanhvít Yngvadóttir Aðalmaður
Einar Már Sigurðarson Aðalmaður
Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður
Ragnar Sigurðsson Varaformaður
Starfsmenn
Valur Sveinsson Embættismaður
Marinó Stefánsson Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Marinó Stefánsson Mannvirkjastjóri
Dagskrá
1.
87.mál umsagnar tillögu til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd,velferð og veiðar villtra fugla og spendýra
Málsnúmer 1704056
Fyrir fundinum liggur frá Umhverfis og samgöngunefnd Alþingis til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 87.mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd nýtir sér ekki umsagnarréttinn.
2.
Leigulönd í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1610078
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytingar á reglum um leigulönd og felur umhverfisstjóra að ganga frá breytingum á orðalagi.
Málinu vísað til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.
Umhverfismál 2017
Málsnúmer 1610080
Lögð fram til kynningar drög að bæklingi þar sem farið er yfir helstu umhverfisverkefni sumarsins, nefndin gerir ekki athugasemdir og felur umhverfisstjóra að vinna málið áfram.
4.
735 Strandgata 77b - breyting á húsnæði
Málsnúmer 1704108
Lagt fram bréf Hjalta Sigurðssonar fh. Bjarka Gíslasonar, dagsett 23. apríl 2017, þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta iðnaðarhúsnæði að Strandgötu 77b á Eskifirði í tvær íbúðir. Strandgata 77b er innan íbúðarsvæðis samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd heimilar að íbúðir verði gerðar í húsinu.
5.
Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar - TRÚNAÐARMÁL
Málsnúmer 1611104
Skýrsla Capacent um greiningu á húsnæðismarkaði í Fjarðabyggð lögð fram sem trúnaðarmál til kynningar. Eigna-. skipulags- og umhverfisnefnd ræddi skýrsluna og mun umræðum um hana áfram á næstu fundum.
6.
740 Urðarbotnar, Nes- og Bakkagil - ofanflóðavarnir
Málsnúmer 1606084
Lagt fram til kynningar Minnisblað frá Verkís um ástand vatnsgeymis í Norðfirði vegna ofanflóðaframkvæmda. Sviðstjóra falið að ræða ofanflóðasjóð vegna málsins.
7.
Norðfjarðargöng - undirbúningur 2012, aðalmál
Málsnúmer 1207029
Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá samráðsfundum um Norðfjarðargöng.
8.
Egilsbúð - viðhaldsmál
Málsnúmer 1601270
Lagðar fram fundargerðir til kynningar.
9.
Eignarsjóður viðhaldsmál 2017
Málsnúmer 1703079
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir málefni eignasjóðs tengt viðhaldsmálum og mun halda þeirri vinnu áfram á næstu fundum.
10.
Tillaga að fyrirkomulagi jarðgerðar
Málsnúmer 1606041
Lagt fyrir drög að samning um jarðgerð og minnisblað verkefnastjóra umhverfismála dags. 2. maí 2017 um samningin um jarðgerð. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarstjóra.