Fara í efni

Félagsmálanefnd

161. fundur
11. janúar 2023 kl. 16:15 - 18:45
að Búðareyri 2, fundarherbergi 1
Nefndarmenn
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir formaður
Þórhallur Árnason varaformaður
Ragnar Sigurðsson aðalmaður
Barbara Izabela Kubielas aðalmaður
Helga Rakel Arnardóttir varamaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir embættismaður
Inga Rún Beck Sigfúsdóttir embættismaður
Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir
Fundargerð ritaði:
Inga Rún Beck Sigfúsdóttir Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu
Dagskrá
1.
Hinsegin stuðningur í skólaumhverfinu - rannsókn
Málsnúmer 2301074
Davíð Samúelsson, frá samtökunum Hinsegin lífsgæði, mætti til sameiginlegs fundar nefndanna og kynnti rannsókn sem samtökin óska eftir að framkvæma með þátttöku starfsfólks grunnskóla í Fjarðabyggð. Félagið Hinsegin lífsgæði var stofnað í tengslum við verkefnið Hinseginn stuðningur í skólaumhverfinu. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og jafnréttisnefnd forsætisráðuneytisins og er ætlað að kanna hvað gert er til að stuðla að öryggi og góðri líðan hinsegin nemenda í skólaumhverfinu. Sérstaklega verður horft til þess hvort þörf sé á sérstökum stuðningsaðila fyrir hinsegin nemendur með sérþekkingu á málefnum hinsegin fólks. Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við lektor í kennslu- og kynjafræðum við Háskólann á Akureyri og ráðgjöfum sem starfa að jafnréttis- og menntunarmálum í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fræðsluyfirvöld Fjarðabyggðar heimila fulltrúum verkefnisins að leita eftir samstarfi við skólastjórnendur um þátttöku í verkefninu með það fyrir augum að þeir tilnefni fulltrúa í hverjum skóla fyrir sig til að taka þátt í því. Samkvæmt samstarfssamningi Hinsegin lífsgæða við mennta- og barnamálaráðuneytið eru verklok áætluð í apríl 2024.
2.
Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1808078
Haustið 2022 var skipaður sex manna starfshópur, þrír fulltrúar úr fræðslunefnd og þrír fulltrúar úr íþrótta- og tómstundanefnd til þess að vinna að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Starfshópurinn leitaði eftir hugmyndum hjá starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana, 120. fundur fræðslunefndar 10.01.2023 241 Fjarðaforeldrum, íþróttafélögum, ungmennaráði, öldungaráði og fleirum. Fjölmörgum hugmyndum var skilað til starfshópsins sem mótaði í framhaldi drög að áherslum til þriggja ára. Drög að áherslum voru kynnt á opnum kynningarfundi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 9. janúar þar sem þátttakendur sögðu sitt álit og komu með ábendingar um breytingar. Fundurinn var í streymi þannig að þeir sem ekki gátu mætt til fundarins gátu tekið þátt í gegnum netið. Fyrir sameiginlegum fundi fræðslunefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og félagsmálanefndar liggja áherslur í fræðslu- og frístundamálum 2023-2025 með áorðnum breytingum eftir kynningarfundinn. Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi áherslur fyrir sitt leyti.
3.
Samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
Málsnúmer 2301026
Erindi frá Hornafirði um samstarf við barnaverndaþjónustu Fjarðabyggðar.
4.
Undirritaður samningur um rekstur umdæmisráðs Landsbyggða barnavernd
Málsnúmer 2301002
Sviðstjóri fjölskyldusviðs var með kynningu á nýju fyrirkomulagi varðandi breytingu á barnaverndarlögum sem tóku gildi um áramótin 2023. Lögin varða breytingar á barnaverndarnefnd þannig að verksvið hennar skiptist annars vegar í verkefni umdæmisráðs, sem fer með þvingunarúrræði og hinsvegar utanumhald um þjónustu og upplýsingagjöf til stjórnsýslu sem fellur undir félagsmálanefnd.
5.
Vegna valdaframsal barnaverndarþjónustu
Málsnúmer 2212065
Samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar.
6.
Sískráningar til Barnarverndarstofu og árleg skýrsla
Málsnúmer 2003044
Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu kynnir sískráningu og þróun mála í barnavernd.
7.
Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027
Málsnúmer 2212121
Sviðstjóri fjölskyldusviðs kynnir tillögu að þingsáætlunar um aðgerðaáætlun í þjónustu við eldra fólk 2023-2027.
Starfsfólki félasgmálanefndar er falið að skila inn umsögn í Samráðsgátt í samvinnu við félagsmálanefnd.
8.
Drög að reglum 2023
Málsnúmer 2211172
Tillögur að breytingum á reglum um þjónustuíbúðir aldraðra kynntar. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á reglum Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk. Málinu er vísað til bæjarráðs.
9.
Drög að reglum 2023
Málsnúmer 2211172
Kynntar eru tillögur að breytingum á gjaldskrá um stuðningsþjónustu. Tillögur að breytingum um stuðningsþjónustu eru samþykktar og vísað til bærjarráðs.