Fara í efni

Félagsmálanefnd

88. fundur
4. október 2016 kl. 16:00 - 18:00
í Molanum fundarherbergi 1 og 2
Nefndarmenn
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Formaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir Aðalmaður
Borghildur Hlíf Stefánsdóttir Aðalmaður
Ásmundur Páll Hjaltason Aðalmaður
Valdimar O Hermannsson Varaformaður
Starfsmenn
Þóroddur Helgason Embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þóroddur Helgason fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - félagsmálanefnd
Málsnúmer 1605160
Félagsmálanefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2017 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Eftir ítarlega skoðun er fjárþörf upp á u.þ.b. 5 milljónir til að ná saman áætluninni. Ræddir voru möguleikar sem grípa þarf til ef ekki er unnt að bæta við rammann.
2.
Ung fólk 2016 - lýðheilsa ungs fólks í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1609157
Fyrir liggur skýrsla Rannsóknar og Greiningar um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð. Skýrslan birtir niðurstöður úr könnun sem gerð var meðal nemenda í 8.-10. bekk grunnskóla í febrúar 2016. Birtur er samanburður á Fjarðabyggð, Höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Í heild eru niðurstöðurnar mjög jákvæðar og flott ungt fólk bæði hér í Fjarðabyggð sem annars staðar á landinu. Vímuefnaneysla er mjög lítil og það á bæði við um tóbak, áfengi sem og önnur vímuefni. Íþrótta- og tómstundaþátttaka er mikil og nemendur telja sig örugga í því umhverfi sem þeir eru í dags daglega. Nemendur eru í góðum og miklum samskiptum við foreldra og samband þeirra við kennara er gott og er mun betra en það mældist 2014. Nemendur telja hins vegar lestrarörðugleika hafa hamlandi áhrif á námsframmistöðu sína og það er meira hér í Fjarðabyggð en hjá nemendum annars staðar á landinu. Það er hins vegar vaxandi kvíði og þunglyndi meðal stelpna á landinu öllu og einnig er svefn nemenda of lítill en um 30 - 40% nemenda sofa 7 klst eða minna á sólarhring, aðeins misjaft eftir árgöngum. Fylgni er á milli mikils kvíða og þunglyndis og lítils svefns og mikillar notkunar á samskiptamiðlum.
Niðurstöðurnar voru kynntar á fundum með foreldrum grunnskóla þriðjudaginn 27. september. Haldnir voru tveir fundir í Fjarðabyggð, á Norðfirði og Fáskrúðsfirði. Samtals mættu rúmlega 30 manns. Á vel lukkuðu málþingi um geðrækt sem haldið var laugardaginn 1. október í Grunnskóla Reyðarfjarðar var einnig farið yfir niðurstöður. Á málþingið mættu um 130 manns víðs vegar að af Austurlandi. Félagsmálanefnd fagnar aukinni umræðu um lýðheilsu og felur fræðslustjóra að fara vel yfir niðurstöðurnar með starfsliði fjölskyldusviðs þannig að hægt verði að bregðast sem fyrst við þeim þáttum sem koma ekki nægilega vel út og um leið að vinna að því að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur á mörgum sviðum.
3.
umsókn um að gerast stuðningsforeldri
Málsnúmer 1609179
Fyrir liggur umsókn um að gerast stuðningsforeldri. Félagsmálanefnd samþykkir umsóknina með þeim fyrirvara að öll nauðsynleg gögn hafi borist til fjölskyldusviðs.