Fara í efni

Fjallskilanefnd

1. fundur
10. ágúst 2022 kl. 14:00 - 16:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður
Arnór Ari Sigurðsson varaformaður
Marsibil Erlendsdóttir aðalmaður
Sunna Júlía Þórðardóttir aðalmaður
Steinn Björnsson aðalmaður
Starfsmenn
Anna Berg Samúelsdóttir embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Aron Leví Beck Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Erindisbréf fjallskilanefndar
Málsnúmer 2205302
Erindisbréf var kynnt fyrir fjallskilanefnd.
2.
Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Málsnúmer 2205172
Skipan fjallskilastjóra sbr. 4. tölulið 62. gr. samþykkta sveitarfélagsins. Bæjarstjórn kýs fjallskilastjóra eftir tilnefningu fjallskilanefndar, samanber ákvæði
fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.
Fjallskilanefnd tilnefnir Þuríði Lillý Sigurðardóttir sem fjallskilastjóra Fjarðabyggðar, lagt er til að Arnór Ari Sigurðsson verði varafjallskilastjóri og hafi umsjón með fjallskilum í Stöðvarfirði og Breiðdal.
3.
Úrgangsmál, dýrahræ og alm. úrgangur í dreifbýli
Málsnúmer 2207099
Fjallskilanefnd felur Skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera leiðarvísi varðandi úrgangsmál í dreifbýli (dýrahræ, rúlluplast o.s.f.) eftir umræður nefndarmanna á fundinum. Nefndin óskar eftir að drög að leiðarvísi verði lögð fyrir til samþykktar á næsta fundi.
4.
Fjallskil og gangnaboð 2022
Málsnúmer 2207098
Fjallskilanefnd hefur sett upp gangnaboð Fjarðabyggðar fyrir haustið 2022.
5.
Fjárréttir í Fjarðabyggð
Málsnúmer 1808042
Staða rétta í sveitafélaginu rædd. Marzibil og Arnóri var falið að sjá um endurbætur á fjárréttum á Reykjum í Mjóafirði, í Stöðvafirði og á Heydölum í Breiðdal.