Fjölskyldunefnd
11. fundur
9. september 2024
kl.
16:15
-
19:00
í Búðareyri 2 fundarherbergi 2
Nefndarmenn
Ragnar Sigurðsson
formaður
Pálína Margeirsdóttir
varaformaður
Tinna Hrönn Smáradóttir
aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Birta Sæmundsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Anna Marín Þórarinsdóttir
Fundargerð ritaði:
Anna Marín Þórarinsdóttir
stjórnandi fræðslumála og skólaþjónstustu
Dagskrá
1.
Staðan á skólum við upphaf skólaársins 2024-2025
Farið var yfir stöðu í skólum Fjarðabyggðar við upphaf á nýju skólaári 2024-2025. Áfram er unnið að því að auglýsa og manna lausar stöður.
2.
leikskóli Breiðdals
Fjölskyldunefnd leggur til að húsnæði leikskólans verði stækkað inn í núverandi húsnæði bókasafnsins enda er það einföld og hagkvæm aðgerð. Metið verði með skólastjóra og forstöðumanni bókasafnsins hvort ekki sé hægt að nýta betur húsnæði bókasafnins sem eftir stendur með það að sjónarmiði að þjónusta þess verði áfram sú sama við nemendur og íbúa Breiðdals. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar á skipulags- og framkvæmdasviði. Jafnframt verður unnið að útfærslu varðandi skjólsæld við skólann.
3.
Trappa
Fjölskyldunefnd vísar kostnaði vegna sérfræðiþjónustu talmeinafræðinga til gerðar viðauka gagnvart yfirstandandi ári. Jafnframt samþykkir fjölskyldunefnd fyrirliggjandi samning og felur stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að ganga frá undirritun hans.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
Fjölskyldunefnd hefur fjallað um bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2025. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
5.
Kaup á tölvum fyrir nemendur grunnskólanna
Fjölskyldunefnd vísar endurnýjun á tölvu- og tækjakaupum til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2025. Málið tekið fyrir að nýju við gerð fjárhagsáætlunar.
6.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Kynning á framlögum vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða sveitarfélaga.
7.
Íþróttavika Evrópu 23-30. september 2024
Stjórnanda íþrótta- og tómstundamála er falið að hafa samband við öll íþróttafélög í Fjarðabyggð til kynna verkefni og hvetja til þátttöku þeirra.
8.
Farsældarráð Austurlands
Fjölskyldunefnd lýsir sig reiðubúna til að taka þátt í farsældarráði Austurlands.
9.
Kuldaboli 2024
Fjölskyldunefnd leggur til að starfsfólk félagsmiðstöðva kanni afstöðu forráðamanna til þess að taka þátt í viðburðinum með því að annast gæslu á meðan á næturgistingu stendur. Jafnframt er lagt til að gisting á meðan Kuldabola stendur sé færð yfir í íþróttahúsið á Reyðarfirði og ekki verði gist í tjöldum. Breytt tilhögun er tilkomin vegna kröfu um auknar öryggisráðstafanir. Ekki verður hægt að halda Kuldabola með næturgistingu án aðkomu forráðamanna.
10.
Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2024
Tekið fyrir umsókn Kvennaathvarfsins um rekstrarstyrk. Málinu vísað til sviðsstjóra fjölskyldusviðs og henni falið að klára beiðnina.
11.
Segulspjöld með útivistareglum
Fjölskyldunefnd þakkar kynningu á segulspjöldum með útivistartíma barna.
12.
Náttúruskólinn
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að skoða málið nánar og koma með tillögu að útfærslu.
13.
Skóla-styrkleikar
Fjölskyldunefnd vísar skólastyrkleikunum til umsagnar hjá skólastjórum grunnskólanna í Fjarðabyggð. Nefndin óskar eftir afstöðu skólanna um hvort að þeir vilja taka þátt og þá með hvaða hætti það yrði gert.
14.
Reglur um skólaakstur í grunnskólum Fjarðabyggðar
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu leggur fram til kynningar samninga um akstur skólabarna úr dreifbýli. Fjölskyldunefnd samþykkir gerða samninga.
15.
Samtal um tónlistarskóla - breytingar til umsagnar
Fjölskyldunefnd vísar umsagnarbeiðni til tónlistarskólastjóra Fjarðabyggðar.