Fara í efni

Fræðslunefnd

105. fundur
8. desember 2021 kl. 16:30 - 18:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Einar Már Sigurðarson formaður
Birta Sæmundsdóttir aðalmaður
Sævar Örn Arngrímsson aðalmaður
Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir aðalmaður
Alma Sigurbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Þóroddur Helgason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Þóroddur Helgason Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Starfsáætlanir og skólanámskrár 2021-2022
Málsnúmer 2110117
Skólastjórar Nesskóla og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar sögðu frá helstu breytingum á skólanámskrá og starfsáætlunum skólanna og svöruðu spurningum sem fram komu á fundinum. Fræðslunefnd samþykkir starfsáætlanirnar og þakkar skólastjórunum fyrir góða kynningu og greinargóð svör.
2.
Reglur um leikskóla
Málsnúmer 2110048
Farið var yfir tillögu að breytingu á reglum um leikskóla. Lagt er til að í reglunum verði kveðið á um að skólaár leikskóla sé skilgreint frá 1. ágúst til 31. júlí og börnum í elsta árgangi verði boðið upp á sumarfrístund í ágúst. Tillaga að breytingu á reglunum sem vörðuðu afslátt af leikskólagjöldum er vísað til samráðshóps um málefni leikskóla. Fræðslunefnd samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum. Vísað til bæjarráðs.
3.
Sumarlokun leikskóla 2022
Málsnúmer 2110165
Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum og er það í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum og niðurstöðu starfshóps um sumaropnun leikskóla. Þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2022 verði þessi: Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 20.06-15.07 báðir dagar meðtaldir, Kæribær Fáskrúðsfirði 20.06-15.07 báðir dagar meðtaldir, Lyngholt Reyðarfirði 04.07-29.07 báðir dagar meðtaldir, Eyrarvellir Norðfirði 15.07-12.08 báðir dagar meðtaldir, Dalborg Eskifirði 20.07-17.08 báðir dagar meðtaldir. Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum allt að átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður sem því nemur. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.