Fræðslunefnd
123. fundur
22. mars 2023
kl.
16:30
-
18:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Birgir Jónsson
formaður
Salóme Rut Harðardóttir
varaformaður
Birta Sæmundsdóttir
varamaður
Jóhanna Sigfúsdóttir
aðalmaður
Ingi Steinn Freysteinsson
aðalmaður
Starfsmenn
Þóroddur Helgason
embættismaður
Gerður Ósk Oddsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Laufey Þórðardóttir
embættismaður
Anna Marín Þórarinsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Þóroddur Helgason
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023
Skólastjóri Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla gerði grein fyrir skólanámskrá skólans og starfsáætlun og svaraði spurningum fundarfólks. Fræðslunefnd þakkar fyrir greinargóða kynningu og skýr svör.
2.
Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
Til umræðu voru hugmyndir um breytingar á reglum um kennslutímaúthlutun til grunnskóla. Næsta skref er að funda með deildarstjórum sérkennslu í grunnskólunum. Fundarfólk var sammála um að vanda til verka. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
3.
Reglur um leikskóla
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram hugmynd að breytingu á reglum um leikskóla. Breytingin gengur út á að foreldrar barna geti sótt um niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og áramóta, í dymbilviku og í vetrarfríi grunnskóla. Vonast er til að breytingin virki sem hvati fyrir foreldra til að gefa börnum frí þessa daga, sem auðveldar leikskólunum að verða við óskum starfsfólks um leyfi, en þeim óskum hefur fjölgað með möguleikanum á uppsöfnun á styttingu vinnuvikunnar. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður aukist við þessa breytingu. Fræðslunefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs.
4.
Gjaldskrá leikskóla 2023
Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram hugmynd að breytingu á gjaldskrá leikskóla árið 2023. Breytingin gengur út á að foreldrar barna geti sótt um niðurfellingu leikskólagjalda milli jóla og áramóta, í dymbilviku og í vetrarfríi grunnskóla. Vonast er til að breytingin virki sem hvati fyrir foreldra til að gefa börnum frí þessa daga, sem auðveldar leikskólunum að verða við óskum starfsfólks um leyfi, en þeim óskum hefur fjölgað með möguleikanum á uppsöfnun á styttingu vinnuvikunnar. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður aukist við þessa breytingu. Fræðslunefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar áfram til bæjarráðs.