Hafnarstjórn
318. fundur
21. október 2024
kl.
16:00
-
17:30
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason
formaður
Jón Björn Hákonarson
varamaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson
aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
aðalmaður
Einar Hafþór Heiðarsson
varamaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
verkefnastjóri
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2025
Áframhaldandi umræða um starfs- og fjárhagsáætlun 2025. Hafnarstjórn samþykkir framlögð gögn og vísar til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun 2025.
2.
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025
Drög að gjaldskrá 2024 lögð fram til samþykkis. Hafnarstjórn samþykkir framlögð drög að gjaldskrá en felur verkefnastjóra hafna að vinna áfram að útfærslum í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju til samþykktar.
3.
Verkleg mengunarvarnaæfing
Verkleg mengunarvarnaæfing var haldin í Fjarðabyggðarhöfnum miðvikudaginn 16.október síðastliðinn. Landhelgisgæslan, Umhverfisstofnun, Samgöngustofa og Fjarðabyggðarhafnir stóðu fyrir þessari sameiginlegu æfingu ásamt því að Heilbrigðiseftirlit Austurlands og slökkvilið Fjarðabyggðar tóku þátt. Farið yfir framgang æfingarinnar og næstu skref. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
4.
Umsókn um styrk til menningarverkefna 2024
Framlögð beiðni menningarstofu Fjarðabyggðar um styrk til menningarmála á árinu 2024. Hafnarstjórn samþykkir umbeðinn styrk.
5.
Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers
Lögð fram beiðni Síldarvinnslunnar um umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskiðjuvers fyrirtækisins. Hafnarstjórn samþykkir að veita umsögn vegna endurnýjunar.
6.
Boð á fund með vinnuhóp Alþjóðahafrannsóknaráðsins
Lagt fram til kynningar boð á fund með vinnuhóp Alþjóðahafrannsóknaráðsins sem rannsakar vistkerfi Noregshafs og þróar aðferðir fyrir vistfræðilega stjórnun á nýtingu Noregshafs með áherslu á uppsjávarfiskastofna. Fundurinn verður haldinn 6. nóvember í húsnæði Hafrannsóknarstofnunar.