Hafnarstjórn
320. fundur
9. desember 2024
kl.
16:00
-
17:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Heimir Snær Gylfason
formaður
Birgir Jónsson
aðalmaður
Bryngeir Ágúst Margeirsson
aðalmaður
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
aðalmaður
Einar Hafþór Heiðarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Birgitta Rúnarsdóttir
embættismaður
Jóna Árný Þórðardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Birgitta Rúnarsdóttir
verkefnastjóri
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Farið yfir stöðu framkvæmda á árinu 2024. Hafnarstjórn þakkar verkefnastjóra hafna fyrir yfirferð á stöðunni.
2.
Ósk um aðgang að eftirlitskerfum við Fjarðabyggðarhafnir
Lögð fram ítrekuð ósk Tollgæslunnar um aðgang að eftirlitsmyndavélum hafna Fjarðabyggðar ásamt uppfærðu lögfræðiáliti vegna beiðninnar. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að afla meiri gagna og vinna málið áfram.
3.
Verkleg mengunarvarnaæfing
Lagt fram til kynningar endurmat verklegrar mengunarvarnaæfingar sem fram fór í Fjarðabyggðarhöfnum í október. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og felur verkefnastjóra hafna að færa nauðsynlegar aðgerðir undir öryggismál hafna.
4.
Varðandi afnám tollfrelsis skemmtiferðaskipa
Lögð fram til kynningar bréf frá Cruise Iceland varðandi ný lög um innviðagjald og gistináttaskatt ásamt frestunar á afnámi tollfrelsis. Hafnarstjórn þakkar kynninguna.
5.
Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2024
Lögð fram tilkynning um greiðslu arðs ásamt fundargerð aðalfundar og ársreikningi Fiskmarkaðs Austurlands. Hafnarstjórn þakkar kynninguna og lýsir yfir ánægju sinni með góða afkomu síðasta árs og þakkar starfsmönnum Fiskmarkaðarins fyrir vel unnin störf.
6.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
Lögð fram til kynningar fundargerð 467.fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.