Skipulags- og framkvæmdanefnd
2. fundur
7. febrúar 2024
kl.
16:00
-
18:45
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
formaður
Stefán Þór Eysteinsson
varaformaður
Jón Björn Hákonarson
aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir
aðalmaður
Kristinn Þór Jónasson
aðalmaður
Ingunn Eir Andrésdóttir
varamaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason
embættismaður
Aron Leví Beck Rúnarsson
embættismaður
Gunnar Jónsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Umsókn um lóð Móbakki 16
Framlögð lóðaumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar, f.h. Búðinga ehf, um lóðina að Móbakka 16 í Neskaupstað.
Skipulags- og framkvæmdanefnd telur að vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi þá sé horft til þess að reist séu tveggja hæða hús við Bakkaveg. Nefndin felur umhverfis- og skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um áform hans. Úthlutun lóðar er frestað.

2.
Melbrún 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Framlögð umsókn Einars Ólafsson, hönnuðar, f.h. Kristins Ingimarssonar vegna viðbyggingar við Melbrún 8 á Reyðarfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að grenndarkynna byggingaráform og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir nefndina.

3.
Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Framlögð umsókn Valgeirs Kristjáns Guðmundssonar, dagsett 2. febrúar 2024, um byggingarleyfi vegna landbúnaðarmannvirkja á Kirkjubólseyri 2 í Norðfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

4.
Umsókn um stöðuleyfi
Umræða um áður útgefið stöðuleyfi fyrir vinnubúðir á Fáskrúðsfirði.
Umhverfis- og skipulagsfulltrúi upplýsti um úrlausn mála vegna stöðuleyfis en málið er í ferli.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögu að lausn mála.

5.
Umsókn um stöðuleyfi
Framlögð stöðuleyfisumsókn Óskars Marinós Sigurjónssonar, dagsett 1. febrúar 2024, varðandi stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámasvæði á Fáskrúðsfirði.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á gámsvæðinu á Fáskrúðsfirði og felur byggingafulltrúa að ganga frá samningi þar um.

6.
Aðalskipulag breyting tjaldsvæði Eskifirði
Framlögð tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á aðalskipulagi á Eskifirði. Tillagan er gerð í framhaldi af vinnu starfshóps um skipulagsmála og ofanflóðavarnir sem nýlega lauk störfum.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að breytingu á aðalskipulagi á Eskifirði vegna breyttrar staðsetningar á afþreyingar- og ferðamannasvæði og stækkun á íbúðarsvæði í Dal 3 á Eskifirði.

7.
Strandgata 6 Neskaupstað ásigkomulag
Framlagt minnisblað skipulagsfulltrúa vegna ásigkomulags húseignarinnar að Strandgötu 6 í Neskaupstað.
Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir með vísan til 56. gr. mannvirkjalaga að rita eiganda bréf vegna ástands hússins og hættu sem nágrönnum stafar af því.

8.
Númerslausir bílar
Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnti framgang umhverfis- og fegrunarverkefnis sem lýtur að númerlausum bílum í sveitarfélaginu.
Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og fagnar áformum.

9.
Fiskeldissjóður - umsóknir 2024
Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024. Til úthlutunar á árinu 2024 eru kr. 437.200.000.
Sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs er falið að hefja vinnu við undirbúning umsókna fyrir árið 2024 og leggja tillögu að þeim fyrir nefndina.

10.
Erindi vegna akstursíþróttasvæðis
Framlagt erindi Bílaklúbbs Austurlands sem barst 5. febrúar 2024. Erindið snýr að hugmyndum um uppsetningu akstursíþróttasvæðis í Fjarðabyggð.
Skipulags- og framkvæmdanefnd óskar eftir nánari hugmyndum og útfærslum félagsins um akstursíþróttasvæði.

11.
Ný staðsetning gámasvæða
Umræða um staðsetningu gámasvæðis á Reyðarfirði. Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að kostnaðarmeta gerð nýs gámasvæðis á Reyðarfirði fyrir nefndina. Jafnframt verði lögð fram tillaga um endurskoðun á gjaldskrá fyrir gámasvæði og drög að nýjum reglum um umgengni á gámasvæðum.

12.
Reglugerð um sjálfbæra landnýtingu
Matvælaráðuneytið hefur kynnt til samráðs drög að reglugerð um sjálfbæra landnýtingu í samræmi við 11. gr. laga um landgræðslu. Umsagnarfrestur er til 14. febrúar nk.
Framlagt til kynningar.
Bæjarráð hefur þegar falið sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs og verkefnastjóra umhverfismála að vinna drög að umsögn.