Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdanefnd

21. fundur
6. nóvember 2024 kl. 16:15 - 18:30
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson formaður
Kristinn Þór Jónasson varaformaður
Elís Pétur Elísson aðalmaður
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður
Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Svanur Freyr Árnason embættismaður
Fundargerð ritaði:
Svanur Freyr Árnason sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
Málsnúmer 2301057
Framlagt innra vinnuskjal frá Nestak varðandi vinnu þeirra við klæðningu grunnskólans á Eskifirði. Áætluð verklok eru í byrjun desember næstkomandi. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur áherslu á að verkinu ljúki sem fyrst.
2.
Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2402026
Óskað er eftir breyttu nýtingarhlutfalli á lóð að Kirkjubólseyri 2. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi og leggja fyrir nefndina að nýju.

3.
Byggingarleyfi breytingar inni Egilsbraut 22
Málsnúmer 2411001
Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu þessa liðar.

Sótt er breytingu á notkun Egilsbraut 22 sem er í dag skráð sem geymsluhúsnæði sem breytist í veislusal út frá veitingahúsi fyrir ca. 50 manns. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytinguna.
4.
Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun
Málsnúmer 2410182
Sótt er um breytingu á notkun að Búðareyri 25. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að útfæra málið frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.


5.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæbakki 28
Málsnúmer 2410129
Umsókn um stækkun á lóð að Sæbakka 28. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að yfirfara beiðnina m.t.t væntanlegs göngustígs og leggja fyrir nefndina að nýju.
6.
Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,735
Málsnúmer 2409211
Framlögð drög að svari við bréfi lóðareiganda Strandgötu 94 á Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir drög að svari og felur sviðsstjóra að ganga frá því og senda.
7.
Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk
Málsnúmer 2410168
Strandgata 58, Eskifirði er eignarlóð. Sótt er um leigulóð til vesturs fyrir sólpall. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið en staðsetja þarf lagnir hitaveitu áður en úthlutun stækkunar á lóðinni fer fram. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að staðsetja lagnir á teikningu og leggja fyrir nefndina að nýju.
8.
Framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
Málsnúmer 2410177
Leggja á 3X25 háspennustreng á milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði um 2 km. leið. Strengurinn leysir af loftlínu sem reist var árið 1975 og hefur legið undir skemmdum vegna snjóflóða sem hafa fallið á þessu svæði loftlínunnar. Áætlað er að fara í framkvæmdir vor 2025 eða um leið og aðstæður leyfa. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leiti og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öll gögn liggja fyrir.
9.
Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað
Málsnúmer 2410211
Umsókn um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grendakynna stöðuleyfið fyrir íbúum Marbakka 14 og 12 og leggja fyrir nefndina að nýju.
10.
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 1
Málsnúmer 2411017
Umsókn um stækkun á lóð við Óseyri 1, Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið frekar og leggja fyrir nefndina að nýju.
11.
Fjölskyldusvæði við Starmýri
Málsnúmer 2409229
Tillaga að útfærslu á fjölskyldusvæði við Starmýri. Skipulags- og framkvæmdanefnd líst vel á útfærsluna og felur sviðsstjóra að ræða við hönnuð um nánari útfærslur á því.
12.
Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Málsnúmer 2404177
Skipulag úrgangsmála í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að taka saman fleirri gögn og leggja fyrir næsta fund.
13.
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025
Málsnúmer 2409159
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025 lögð fram til umfjöllunar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir gjaldskránna og vísar henni til fjárhagsáætlunar 2025.