Fara í efni

Stjórn menningarstofu og safnastofnunar

4. fundur
11. október 2022 kl. 16:30 - 19:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Nefndarmenn
Pálína Margeirsdóttir formaður
Birta Sæmundsdóttir varaformaður
Bjarki Ingason aðalmaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm aðalmaður
Benedikt Jónsson aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson embættismaður
Jóhann Ágúst Jóhannsson embættismaður
Pétur Þór Sörensson embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
Málsnúmer 2208081
Framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir menningarmálaflokkinn 2023 til umræðu stjórnar ásamt drögum starfsáætlunar.
Stjórn samþykkir framlagða starfs- og fjárhagsáætlun menningarmála fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs.
2.
Gjaldskrá bókasafna 2023
Málsnúmer 2210048
Framlögð drög að gjaldskrá bókasafna til umfjöllunar og afgreiðslu.
Stjórnin samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrár bókasafna sem taki gildi 1.1.2023 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs.
3.
Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
Málsnúmer 2209114
Framlögð drög að gjaldskrám minjasafna til umfjöllunar og afgreiðslu.
Stjórnin samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrár minjasafna með minniháttar breytingum. Gjaldskrár taki gildi 1.1.2024 og vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarráðs samhliða því að uppfærsla verði á gjaldskrá ársins 2022 til samræmis við 2024.
4.
Gjaldskrá félagsheimila
Málsnúmer 2210047
Framlögð drög að gjaldskrá félagsheimila til umfjöllunar og afgreiðslu.
Stjórnin samþykkir fyrir sitt leyti gjaldskrár félagsheimila sem taki gildi 1.1.2023 og vísar gjaldskrám til afgreiðslu bæjarráðs. Jafnframt er vísað til forstöðumanns menningarstofu að endurmeta gjaldskrá fyrir Félagsheimilið Skrúð í samráði við Slysavarnardeildina Hafdísi og leggja fyrir stjórnina.
5.
Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöð Stöðvarfirði
Málsnúmer 2209222
Framlögð beiðni félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um fjárstyrk til rannsókna. Á fundi með þingmönnum kjördæmisins var farið yfir stöðu og áherslur og lögð áhersla á mikilvægi þess að rannsóknum verði fram haldið.
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar heldur áfram að styrkja við fornleifagröftinn eins og undanfarin ár og mun beita sér eins og kostur er fyrir því að afla fjármagns til stuðnings verkefnsins.
6.
Starfshópur um framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Málsnúmer 2206071
Vísað var frá fyrri fundi stjórnar til forstöðumanns safnastofnunar að kanna möguleika á heimsókn námsbrautar í safnafræði hjá HÍ til að meta valkosti vegna staðsetningar sem fram koma í minnisblaði starfshópsins. Námsbrautin lýsir áhuga á að koma að verkefninu sé þess óskað. Gerð grein fyrir heimsókn menningar- og viðskiptaráðherra í Stríðsárasafnið og fundi sem haldinn var með þingmönnum 5 október 2022.
Stjórnin telur að skoða þurfi nánar valkosti fyrir staðsetningu Stríðsársafnsins í miðbæjarskipulagi Reyðarfjarðar til samanburðar við núverandi staðsetningu safnsins. Því er tillaga stjórnar að við gerð skipulags miðbæjar á Reyðarfirði verði litið til valkosta fyrir staðsetningu safnsins og þeir fari í hefðbundið kynningar- og afgreiðsluferli við skipulagsgerðina. Stjórn menningarstofu og safnastofnunar taki þátt í því ferli. Stjórnin vísar málefninu til skoðunar bæjarráðs.
Jafnframt er formanni stjórnar og forstöðumanni safnastofnunar falið að rita mennta- og viðskiptaráðherra erindi um framtíðarsýn og markmið sveitarfélagsins varðandi uppbyggingu safnsins og tillögur að uppbyggingu þess.
7.
Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar
Málsnúmer 2209228
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar nefnda sveitarfélagsins erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.
Fjallað um mikilvægi ungmennaráðs og að sjónarmið þeirra komi fram ásamt því að tekið sé tillit til þeirra við ákvarðanatöku í þeim málum sem þau varðar.
8.
Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2020 - 2022
Málsnúmer 2004118
Farið yfir málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar á Stöðvarfirði. Á fundi með þingmönnum kjördæmisins var farið yfir stöðu og áherslur sveitarfélagsins í málefnum þess og að miðstöðin verði miðstöð skapandi greina á Austurlandi.