Stjórn menningarstofu
15. fundur
10. mars 2025
kl.
14:00
-
15:10
í Molanum fundarherbergi 5
Nefndarmenn
Jón Björn Hákonarson
formaður
Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm
varaformaður
Arndís Bára Pétursdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gunnar Jónsson
embættismaður
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Gunnar Jónsson
bæjarritari
Dagskrá
1.
Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2025
Rædd drög að söfnunarstefnum fyrir Fjarðabyggð. Farið yfir heimsóknir í geymslur safnanna og forgangsröðun verkefna. Jafnframt kynnt umsókn í nýsköpunarsjóð námsmanna sem er til að styðja við verkefni í forvörslu og grisjun safnakosts.
2.
Flutningur muna Safnahússins úr Gylfastöðum
Framlögð drög að áætlun um forvörslu og grisjun muna úr Strandgötu 62 á Norðfirði í Atóm.
Stjórn samþykkir framlögð drög og felur verkefnastjóra safna að vinna áfram að söfnunarstefnu fyrir söfn í eigu sveitarfélagsins. Stefnan verður tekin fyrir í stjórn þegar drög liggja fyrir.
Stjórn samþykkir framlögð drög og felur verkefnastjóra safna að vinna áfram að söfnunarstefnu fyrir söfn í eigu sveitarfélagsins. Stefnan verður tekin fyrir í stjórn þegar drög liggja fyrir.
3.
Beiðni um afnot af aðstöðu til hljómsveitaræfinga í Skrúð
Framlögð beiðni áhugafólks um afnot af aðstöðu til hljómsveitaræfinga í Skrúð.
Stjórn menningarstofu tekur vel í erindið og felur stjórnanda íþróttamála að útfæra afnot af húsnæði með bréfritara ásamt því að setja upp leigusamning í samráði við bæjarritara sem lagður verður fyrir bæjarráð.

4.
Umsókn um styrk - Íslenska stríðsárasafnið endurbygging
Gerð grein fyrir umsókn í Fiskeldissjóð til endurgerðar Íslenska Stríðsárasafnsins.
5.
Umsókn um styrk - forvörsluhús safna
Gerð grein fyrir umsókn í Fiskeldissjóð til uppbyggingar varðveisluhúss fyrir minjasöfn í Fjarðabyggð.
6.
Samningur um menningu - tónlistarlíf á Austurlandi
Framlagður til kynningar viðauki við menningarsamning Fjarðabyggðar við Samband sveitarfélaga á Austurlandi.